Sex einstaklingar í einangrun í Vestmannaeyjum
Eins og kunnugt er hefur Covid-19 smitum á landsvísu fjölgað verulega síðustu vikuna og útbreiðsla smita verið mikil. Sem stendur eru 6 einstaklingar í einangrun í Vestmannaeyjum vegna Covid-19. Fimm þeirra voru í sóttkví við greiningu. Þá eru 28 einstaklingar í sóttkví hér í Eyjum.
Afar mikilvægt er að einstaklingar sem eru í sóttkví fylgi reglum þar að lútandi í einu og öllu. Nálgast má reglurnar hér https://www.covid.is/flokkar/sottkvi

Rauði kross Vestmannaeyja minnir á þjónustu Krónunnar og Apótekarans um heimsendingu á mat og lyfjum, hafið samband við vestmannaeyjar@kronan.is fyrir matvæli. Sími Apótekarans er 481 3900. Minnum á Hjálparsíma og netspjall RKÍ í 1717, Hjálparsíminn er alltaf opin.

Þá eru allir sem finna fyrir minnstu flensueinkennum hvattir til að fara rakleitt í skimun og halda sig til hlés þar til niðurstaða úr skimun liggur fyrir. Á HSU í Vestmannaeyjum, Sólhlíð 10, eru tekin sýni alla virka daga kl. 13:00-13:15. Best er að skrá sig í sýnatöku gegnum vefsíðu Heilsuveru.is, en einnig má hafa samband við heilsugæslu (432 2500). Mæting í skimun er við inngang á 1. hæð, aðkoma frá Helgafellsbraut.
Í undantekningartilfellum eru tekin sýni um helgar og frídaga, en það er metið í hverju tilviki fyrir sig. Í þeim tilfellum skal hafa samband við læknavaktina, 1700, sem vísar áfram á vaktlækni ef ástæða þykir til.
Aðgerðastjórn vill brýna alla íbúa í Vestmannaeyjum sem og alla gestkomandi að gæta sérlega vel að einstaklingsbundnum smitvörnum og almennum sóttvörnum, virða eins metra regluna, spritta hendur og nota andlitsgrímu. Þetta á við um alla einstaklinga hvort sem þeir hafa fengið bólusetningu eða ekki.

Nýjustu fréttir

Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag
Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Radarhýsi rís á Stórhöfða
Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum
Vertu velkomið haust
Íþróttamiðstöðin eitt af táknum endurreisnar Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.