Sigurvin Marínó Sigursteinsson er Eyjamaður vikunnar: �?örf fyrir að láta gott af sér leiða
5. október sl. fagnaði skátafélagið Faxi þeim tímamótum að 50 ár eru síðan félagið hóf að gefa út sérstakt félagsblað undir heitinu Skátablaðið Faxi. Í öll þau ár hefur Marinó Sigursteinsson verið ábyrgðarmaður blaðsins, auk þess að vera ritstjóri þess hin fyrstu árin. Marinó er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Sigurvin Marinó Sigursteinsson.
Fæðingardagur: 7. desember 1952.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Giftur Marý �?. Kolbeinsdóttur. 5 börn: Heiða Björk, Bjarni �?lafur, Ingibjörg, Ingibjörg �?sk og Sigursteinn. 8 barnabörn og það 9. á leiðinni.
Uppáhalds vefsíða: heimaslod.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: �?ll eyjalög sungin af Blítt og létt og fjöldasöngur.
Aðaláhugamál: Fuglar, fuglaskoðun og fuglamerkingar.
Uppáhalds app: �?g veit ekki einu sinni hvað það er.
Hvað óttastu: Ekkert, tek öllu af auðmýkt. Mottó í lífinu: Vera heiðarlegur og trúr skátahugsjóninni, sjálfum mér og öðrum.
Apple eða Android: Hvað er það?
Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Baden Powell.
Hvaða bók lastu síðast: Er alltaf að lesa bækur eftir Eyjamenn eða sem tengjast Eyjunum.
Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Ole Gunnar Solskjær, Manchester United og ÍBV.
Ertu hjátrúarfull/ur: Nei.
Stundar þú einhverja hreyfingu: Göngu þegar ég mögulega get.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Náttúrulífsþættir. Held mikið upp á Pál Steingríms.
Skipar skátahreyfingin stóran sess í hjarta þínu: Já, ég hef alltaf verið stoltur af því að vera skáti og er viss um að það hefur gert mig að betri manni. �?g hef einnig eignast vini á öllum aldri.
Hvernig kom það til að gefa út skátablaðið fyrir 50 árum síðan: Einhver þörf á því að láta gott af sér leiða og gera gagn.
Nú hefur þú verið ábyrgðarmaður blaðsins í 50 ár, ætlar þú að halda áfram eða segja þetta gott: �?g held að það viti það allir að ég kann ekki að segja nei.

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.