Sjómenn farnir í verkfall - vélstjórar sömdu
Samn­ingsum­leit­un­um sjó­manna og vél­stjóra á fiski­skip­um við út­gerðir var slitið á tí­unda tím­an­um í gærkvöld. Verk­fall sjó­manna skall því á frá og með kl. 23 í gær. VM-Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna undirrituðu hins vegar nýj­an kjara­samn­ing í nótt, sem mun gilda til árs­loka 2018.
Viðræðurn­ar strönduðu á mönn­un­ar­mál­un­um, að sögn Bergs �?orkels­son­ar, stjórn­ar­manns í Sjó­manna­fé­lagi Íslands.
Í sam­tali við mbl.is seg­ir hann full­trúa sjó­manna hafa lagt fram þrjár mis­mun­andi til­lög­ur að breyttu fyr­ir­komu­lagi varðandi mönn­un á upp­sjáv­ar­skip­um en þeim hafi jafn­h­arðan verið hafnað af út­gerðarmönn­um og lítið sem ekk­ert verið lagt fram sem til­lög­ur á móti.
Sjó­menn segj­ast þreytt­ir
Sjó­mönn­um á nýrri upp­sjáv­ar­skip­un­um hef­ur fækkað mikið und­an­far­in ár og er svo komið að menn telja breyt­inga þörf. Að sögn Bergs segj­ast sjó­menn þreytt­ir, fá ekki nægi­lega hvíld á milli vakta og sætta við ekki við áfram­hald á því ástandi.
�?tgerðirn­ar hafi tekið fá­lega í þær úr­bæt­ur sem fyr­ir­svars­menn sjó­manna og vél­stjóra lögðu til og því hafi viðræðum verið slitið kl. 21.30 í kvöld.
Rík­is­sátta­semj­ari hef­ur ekki boðað deiluaðila aft­ur að samn­inga­borðinu og mun ekki gera það fyrr en að viku liðinni, nema nýj­ar til­lög­ur í þess­um efn­um líti dags­ins ljós að sögn Bergs.
Of langt gengið í fækk­un sjó­manna
Val­mund­ur Val­munds­son, formaður Sjó­manna­sam­bands Íslands, hef­ur sent eft­ir­far­andi frétta­til­kynn­ingu fyr­ir hönd samn­inga­nefnda sam­bands­ins, Verka­lýðsfé­lags Vest­f­irðinga og Sjó­manna­fé­lags Íslands.
�??Í kvöld kl. 21.20 slitnaði upp úr viðræðum sjó­manna og út­vegs­manna um nýj­an kjara­samn­ing. Verk­fall und­ir­manna og vél­stjóra á fiski­skip­um skell­ur því á kl. 23.00 í kvöld.
Ástæða þess að upp úr slitnaði er fyrst og fremst deila um mönn­un upp­sjáv­ar­skipa og ís­fisk­tog­ara. Sjó­menn telja að alltof langt sé gengið í fækk­un sjó­manna í þess­um skipa­flokk­um. Til­lög­ur að lausn komu fram en ekki náðist niðurstaða í þess­um mál­um.�??
Vélstjórar og málmtæknimenn sömdu í nótt
Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) og VM-Fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna undirrituðu hins vegar nýj­an kjara­samn­ing í nótt, sem mun gilda til árs­loka 2018.
Verk­fall sjó­manna á fiski­skipa­flot­an­um skall á klukk­an 23 í gær­kvöldi. Fiski­skip­in hættu þá þegar veiðum, hífðu veiðarfæri og sigldu áleiðis til hafn­ar. �?au skip sem eiga lengstu leiðina voru í Bar­ents­hafi og tek­ur heim­sigl­ing­in um viku­tíma.
Verk­fallið mun hafa mik­il áhrif í sjáv­ar­út­veg­in­um og smám sam­an í þjóðfé­lag­inu öllu. Um 2.500 sjó­menn eru í þeim fé­lög­um sem boðuðu verk­fallið. Með þeim er á sjó fjöldi skip­stjórn­ar­manna sem samþykktu kjara­samn­ing á dög­un­um þegar und­ir­menn og vél­stjór­ar felldu. �?eir eru einnig verk­efna­laus­ir meðan á verk­falli stend­ur. �?á verður fisk­verka­fólk verk­efna­laust þegar hrá­efnið í fiskiðjun­um klár­ast.
Jens Garðar Helga­son, formaður Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, seg­ir að áhrif­in á fyr­ir­tæk­in ráðist af því hversu langt verk­fallið verður. �?að komi illa við alla grein­ina en þó verst við þá sem vinna að út­flutn­ingi á fersk­um fiski. Stór­ir mánuðir séu framund­an í sölu á fersk­um fiski fyr­ir jól­in.
Rík­is­sátta­semj­ari til­kynnti að hann myndi heyra í samn­ingsaðilum und­ir lok næstu viku og meta hvort ástæða væri til að boða til samn­inga­fund­ar.
Mbl.is greindi frá:

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.