Sjúkraflugvél í vanda við Eyjar - lending gekk vel
Mikill viðbúnaður var á flugvellinum í Vestmannaeyjum í hádeginu þar sem bilun kom upp í sjúkraflugvél Mýflugs, sem var á leið til Eyja. Samkvæmt útkalli Neyðarlínunnar var vélin búin að missa allt rafmagn. En sem betur fer reyndist aðeins um rafmagnsbilun að ræða í vélinni, sem lenti ósködduð og fyrir fullu vélarafli stuttu síðar. Verið er að skoða vélina og er ekki vitað hvers eðlis bilunin er en flugvélin er nýleg, framleidd 1999 og var keypt í september og kom í stað flugvélarinnar sem fórst við Akureyri í byrjun ágúst.
Í fyrstu útgáfu fréttarinnar var sagt að tilkynning hefði borist um eld í vélinni. �?að reyndist ekki rétt. Slökkvilið Vestmannaeyja var ræst út en í boðun til Slökkviliðsins stóð: F2-ELDUR-,91. �?að þýðir þó ekki endilega að um eld sé að ræða. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.