„Bæði bæjarfulltrúar og þingmenn hafa þá einörðu skoðun að siglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar séu framtíðar samgöngur milli lands og Eyja. Þingmenn fullvissa okkar um að þeirra stuðningur sé alger og allt verði gert til að vinna Landeyjahöfn út úr byrjunarörðugleikum,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri eftir fund bæjarstjórnar með fjórum þingmönnum Suðurkjördæmis á mánudaginn.