Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Bátur frá Volendam flytur farþega milli skemmtiferðaskipsins og Vestmannaeyja. Skipið lá við akkeri utan við innsiglinguna þar sem ekki var lagt að bryggju. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Skemmtiferðaskipið Volendam frá Holland America Line lá við akkeri rétt utan við innsiglinguna til Vestmannaeyja í morgun áður en það tók stefnuna inn til hafnar. Skipið er á hringferð um Ísland, Grænland og Kanada og var á áætlun í Vestmannaeyjum í dag.

Ljósmyndari Eyjafrétta, Óskar Pétur Friðriksson, var á ferðinni og myndaði skipið þar sem það lá við akkeri utan við innsiglinguna. Á myndasyrpunni sést vel hversu stórt skipið er þegar farþegabátar og ferjur sigla fram hjá því á leið til og frá höfninni. Þar má meðal annars sjá Herjólf, Baldur og Teistuna, auk lítilla báta Volendam sem fluttu farþega milli skipsins og lands. Að auki liggur annað stórt skemmtiferðaskip í Klettsvík. Það er Viking Mars. Skipið var smíðað árið 2022, tekur 930 farþega og siglir undir norskum fána og er 47.800 brúttótonn að stærð, 228 metrar á lengd.

Volendam er hins vegar 237 metra langt og tekur allt að 1.432 farþega auk um 600 manna áhafnar. Skipið var smíðað árið 1999 og hefur um árabil verið reglulegur gestur í íslenskum höfnum yfir sumartímann.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.