Skjárinn sem stal æskunni
Johann Ingi Ads IMG 4231 (1)
Jóhann Ingi Óskarsson

Aðsend grein

Jóhann Ingi Óskarsson 

Farsímanotkun barna og áhrif samfélagsmiðla á þroska þeirra liggur mér verulega á hjarta. Sem tveggja barna faðir hef ég sjálfur upplifað hvernig tæknin getur smám saman tekið meira pláss en maður gerir sér grein fyrir í fyrstu. Það sem byrjar sem saklaus leið til að fá smá „frið“ að rétta barni iPad í hendurnar getur þróast yfir í mynstrið þar sem skjárinn verður aðalafþreying barnsins. Ég sá þetta gerast á mínu eigin heimili. Leikur með kubba, dúkkur og ímyndunarafl vék fyrir stanslausri skjánotkun. Skapsveiflur jukust, þolinmæði minnkaði og athyglin beindist sífellt meira að tækinu en fólkinu í kring. Þegar við ákváðum að taka skýra stefnu og takmarka og í raun banna samfélagsmiðla og óþarfa skjánotkun sáum við breytingar á örfáum dögum. Við „fengum barnið okkar aftur“. Þetta var áminning um hversu djúp áhrif lítið tæki getur haft á þroska og hegðun barns.

Samfélagsmiðlar og andleg heilsa barna

Rannsóknir síðustu ára hafa varpað æ skýrara ljósi á tengsl samfélagsmiðlanotkunar og andlegrar heilsu barna og unglinga. Í skýrslu frá U.S. Department of Health & Human Services og yfirlýsingu frá embætti landlæknis Bandaríkjanna (Surgeon General) er bent á að aukin notkun samfélagsmiðla tengist aukinni hættu á kvíða, þunglyndi, einmanaleika og lakari sjálfsmynd meðal ungs fólks. Sérstaklega er bent á að heilinn á unglingsárum sé enn í mótun og því viðkvæmari fyrir stöðugu áreiti, samanburði og svokölluðu „dópamín-flæði“ sem fylgir endalausum tilkynningum, „lækum“ og stuttum myndböndum. Sérfræðingar hjá Johns Hopkins Medicine benda einnig á að of mikil notkun samfélagsmiðla geti haft áhrif á svefn, sjálfsmynd og félagsfærni barna og unglinga. Þeir leggja áherslu á að ekki sé aðeins um magn notkunar að ræða, heldur einnig eðli innihaldsins og hversu miklu eftirliti og leiðsögn fylgir frá foreldrum. Samfélagsmiðlar eins og TikTok og Instagram, auk netleikja á borð við Roblox, eru hannaðir til að halda athygli notenda eins lengi og mögulegt er. Þetta eru ekki hlutlaus verkfæri þau eru byggð á viðskiptamódeli þar sem athygli barnsins er varan. Í þeirri baráttu standa foreldrar oft höllum fæti. Við fullorðna fólkið, með fullþroskaða heilastarfsemi, finnum sjálf hversu erfitt getur verið að leggja frá sér símann. Þá hlýtur spurningin að vera: Hver eru langtímaáhrifin á heila barna sem eru enn í mótun?

Sakleysi, leikur og þroski

Barnæska á að einkennast af leik, sköpun, hreyfingu og samskiptum augliti til auglitis. Í frjálsum leik þjálfa börn ímyndunarafl sitt, lausnamiðaða hugsun, tilfinningastjórn og félagsfærni. Þegar skjárinn tekur yfir minnkar rýmið fyrir þessa mikilvægu þætti. Þetta snýst ekki um að hafna tækni alfarið. Tækni er hluti af nútímasamfélagi og mun áfram gegna mikilvægu hlutverki í lífi barna okkar. Spurningin er hins vegar: Á hvaða aldri, í hvaða magni og undir hvaða leiðsögn?

Spjaldtölvur í skólum – nauðsyn eða ofnotkun?

Í mörgum grunnskólum í dag, þar á meðal í Vestmannaeyjum, eru spjaldtölvur orðnar fastur hluti af kennslu. Röksemdin er gjarnan sú að börn þurfi að læra á þá tækni sem samfélagið byggir á. Það er vissulega mikilvægt að börn tileinki sér stafræna færni. Hins vegar má velta fyrir sér hvort slíkt krefjist stöðugs aðgengis að persónulegum snjalltækjum frá unga aldri. Flest okkar lærðu á snjallsíma og spjaldtölvur án formlegrar kennslu einfaldlega vegna þess að börn og unglingar tileinka sér nýja tækni hratt og af eðlisávísun. Á yngri árum ætti áherslan fremur að vera á grunnfærni: lestur, skrift, talnaskilning, félagsfærni og skapandi leik. Handskrift, bóklestur og verkleg vinna krefjast annars konar einbeitingar og hugrænnar úrvinnslu en snertiskjárinn. Þessi færni leggur grunn að dýpri skilningi og sjálfstæðri hugsun síðar meir.

Ábyrgð foreldra og samfélags

Við sem foreldrar stöndum frammi fyrir erfiðri stöðu. Það er óþægilegt að setja mörk þegar börn mótmæla, verða reið eða upplifa að þau standi utan hópsins. En foreldrahlutverkið snýst ekki um vinsældir það snýst um ábyrgð. Skýr mörk, samvera án skjáa og virk leiðsögn skipta sköpum. Börn þurfa ekki aðeins aðgang að tækni þau þurfa fyrirmyndir sem sýna þeim hvernig á að nota hana meðvitað og í hófi. Það krefst samtals, samræmis og hugrekkis. En þetta á ekki að vera barátta hvers heimilis fyrir sig. Foreldrar finna margir fyrir þrýstingi að vilja ekki vera „strangasta“ foreldrið. Þegar við stöndum ein er auðvelt að gefa eftir. Þegar við stöndum saman breytist staðan. Samfélagið setur þegar sameiginleg viðmið þegar kemur að börnum. Við sammælumst um útivistartíma. Við setjum reglur um öryggi. Við grípum inn í þegar velferð barna er annars vegar. Það gerum við vegna þess að börn eiga rétt á vernd og leiðsögn. Stafrænn heimur barna er orðinn jafn raunverulegur og sá líkamlegi. Því er eðlilegt að við spyrjum: Eigum við ekki líka að hafa sameiginleg viðmið

Þegar samfélag stendur saman

Kannski er lausnin einfaldari en við höldum. Að standa saman. Að ræða málin af yfirvegun. Að móta sameiginleg viðmið. Ég tel að Vestmannaeyjabær geti, í samstarfi við foreldra, skólasamfélagið og fagfólk, lagt grunn að skýrum og skynsamlegum viðmiðum um skjánotkun og aðgengi barna að samfélagsmiðlum. Ekki sem boð og bönn heldur sem sameiginleg leiðarljós sem styðja foreldra og skapa jafnræði fyrir börnin okkar. Mikilvægt væri að svona vinna kæmi ekki sem valdboð að ofan frá sveitarfélagi en sveitarfélagið gæti sannarlega haft frumkvæði að samtali við foreldra um þetta atriði og séð hvert það getur leitt okkur. Þegar samfélag ákveður að forgangsraða börnum, þá breytist menningin. Spurningin er ekki hvort við getum gert eitthvað. Heldur hvort við ætlum að gera það.

 

Jóhann Ingi Óskarsson 

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.