Skorar á Vega­gerðina að viður­kenna vand­ann
20240210_173143_landeyjahofn_gardur_0224
Það er skoðun greinahöfundar að hönn­un og staðsetn­ing Land­eyja­hafn­ar sé senni­lega eitt mesta verk­fræðislys seinni ára hér við Ísland. Eyjar.net/Tryggvi Már Sæmundsson

Halldór B. Nellett, fyrrum skipsherra hjá Landhelgisgæslunni, skorar á Vegagerðina að horfast í augu við það að Landeyjahöfn, hönnun hennar og staðsetning, hafi verið mistök og að stofnunin freisti þess að finna varanlegar lausnir á vandanum í stað sandmoksturs úr höfninni sem kostar skattgreiðendur ógrynni fjár á hverju ári.

„Það er mín skoðun að hönn­un og staðsetn­ing Land­eyja­hafn­ar sé senni­lega eitt mesta verk­fræðislys seinni ára hér við Ísland.“ skrif­ar Hall­dór í grein í Morg­un­blaðinu í dag.

Seg­ir hann að varað hafi verið við því á sín­um tíma að staðsetn­ing hafn­ar­inn­ar væri ekki æski­leg. Vanda­mál­in við staðsetn­ingu og hönn­un hafn­ar­inn­ar væru tvíþætt.

Sjógang­ur utan hafn­ar­mynn­is og sand­b­urður vegna ná­lægðar við Markarfljót. Þá væri einnig mjög lík­legt við breytta hafn­argarða að sand­dælu­skip gætu bet­ur at­hafnað sig við verri aðstæður en ella.

Rúm­lega 600 millj­ón­ir í sandmokstur í fyrra

Hall­dór vitnar m.a. til stjórn­sýslu­út­tekt­ar Rík­is­end­ur­skoðunar sem kom út í maí árið 2022 þar sem kom fram að all­ar áætlan­ir um rekst­ur Land­eyja­hafn­ar hefðu verið „mjög vanáætlaðar“.

„Þar sagði m.a. að búið væri að verja meira fé í að dæla sandi úr Land­eyja­höfn en kostaði að byggja hana og var dýpk­un­ar­kostnaður á ár­un­um 2011-2020 fjór­fald­ur miðað við upp­haf­leg­ar áætlan­ir, þ.e. á fyrstu tíu árum hafn­ar­inn­ar er kostnaður vegna viðhalds­dýpk­un­ar orðinn meiri en bygg­ing­ar­kostnaður henn­ar,“ skrif­ar Hall­dór.

Nefn­ir hann að sandi hafi verið mokað úr höfn­inni á síðasta ári fyr­ir rúm­lega 600 millj­ón­ir króna. Stofn­kostnaður við höfn­ina nam tæp­um 3,33 millj­örðum króna.

Halldór B. Nellett.   Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Reyna að finna lausn­ir en ekki bara moka sand enda­laust

Hall­dór seg­ir marg­ar brota­lam­ir vera á hönn­un hafn­ar­inn­ar og brýnt sé að bæta hana. Hann skor­ar á Vega­gerðina að viður­kenna vanda­málið og moka ekki bara enda­laus­um sandi.

„Ég skora á Vega­gerðina að viður­kenna vand­ann, höfn­in sjálf, hönn­un henn­ar og staðsetn­ing er stærsta vanda­málið. Reyna að finna lausn­ir en ekki bara moka sand enda­laust.

Ef niðurstaða reyndra hafn­ar­verk­fræðinga verður sú að ekki sé hægt að lag­færa höfn­ina svo hún virki bet­ur þurfa stjórn­völd að svara því hvort rétt­læt­an­legt sé að eyða skatt­fé okk­ar í enda­laus­an sandmokst­ur með stop­ul­um ferðum eða þá hrein­lega að af­skrifa Land­eyja­höfn al­ger­lega,“ skrif­ar Hall­dór.

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni í Morg­un­blaðinu.

https://eyjar.net/619-milljonir-i-landeyjahofn-i-fyrra/

https://eyjar.net/fratafir-i-landeyjahofn/

Nýjustu fréttir

Valur kemur til Eyja eftir viðburðaríka viku
Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.