Smá meira tilfinningaklám!
Senn líður að lokun undirskriftarsönunar á vefsíðunni lending.is, þar sem skrifað er undir kröfu um að landsmenn fái að halda óskertri flugstarfsemi í Vatnsmýrinni um ókomna tíð. Tilefnið er sú ætlan borgaryfirvalda að svipta okkur þessari perlu sem Reykjavíkurflugvöllur er, sbr. nýtt aðalskipulag borgarinnar sem nú er í auglýsingaferli. Þar með rofnar sú tenging við alla kjarna stjórnsýslu, menningar og heilbrigðisþjónustu, sem flugvöllurinn hefur veitt okkur og gert kleift að sækja hvaðanæva af landinu með stuttum fyrirvara og jafnvel skila okkur heim aftur samdægurs. Þetta hefur sérstaka þýðingu fyrir sjúkraflugsþjónustuna sem sér til þess að þeir sem verða fyrir því óláni að veikjast illa eða slasast fjarri borginni, komist til þeirrar sértæku læknismeðferðar sem á þarf að halda, í tæka tíð. Og þar sem þessi þáttur í umræðunni, sjúkraflugið, er sá hverfipunktur sem engin fjárhagsleg rök vinna á, þá hafa flugvallarandstæðingar tekið sig til og ráðist að einmitt þessum þætti.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.