Smáey VE gerð út frá Filippseyjum?
Fréttir af ofurfellibylnum Haiyan í Filippseyjum hafa verið fjölmargar enda miklar hamfarir og tala látinna há. Hins vegar gerði hin virta fjölmiðlafyrirtæki mistök í fréttaflutningi sínum í dag, reyndar ansi stór mistök. Á vef fjölmiðilsins, Sky.com var sýnt myndband af skipi sem barðist um í öldurótinu en skipið var sagt vera frá Filipseyjum og að myndbandið hafi verið tekið þar. �?arna var hins vegar togarinn Smáey VE og var myndbandið tekið við Íslandsstrendur. Guðmundur Oddgeirsson vakti athygli á málinu og sendi Eyjafréttum þessar myndir sem fylgja fréttinni. Hann sendi jafnframt ritstjórn Sky línu og stuttu síðar var búið að taka fréttina út af vef Sky.com.
Meðfylgjandi er myndbandið af Smáey VE sem Tómas Marshall tók í byrjun árs 2008 en í myndbandinu sést Smáey VE sigla inn til hafnar í Eyjum í stormi og mjög slæmu sjólagi.

Nýjustu fréttir

Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.