Sólarlag hljómar í Eldheimum á Goslokum
– Guðrún Erlings heldur útgáfutónleika á plötu sinn í Vestmannaeyjum
Fimm af sjö söngvurum sem koma fram í Eldheimum í kvöld.

„Við hlökkum mikið til að halda útgáfutónleika Sólarlags í Eldheimum. Plötuútgáfan hefur verið eitt stórt ævintýri hjá okkur Gylfa. Við hjónin tókum strax þá ákvörðun að gera þetta saman og hafa gaman af öllu ferlinu. Það tókst og tónleikarnir verða glæsilegur endapunktur á sex mánaða vinnu þegar lögin af plötunni verða flutt í Eldheimum föstudaginn 3. júlí klukkan 18.30,“ segir Guðrún Erlingsdóttir tónlistarkona með meiru.

„Við lofum fjölbreyttum tónleikum með Bandinu hennar Rúnu, sem skipað er Sigurgeiri Sigmundssyni, Birgi Nielsen, Dúna Geirssyni og Þóri Ólafssyni. Nánast allir söngvararnir sem koma fram á plötunni verða einnig á sviðinu. Eyjakonurnar í hópnum eru Sísí Ástþórs, Jóhanna Björk Gylfadóttir, ég sjálf og Gugga Lísa, sem á ættir að rekja til Eyja. Aðrir söngvarar eru Tómas Guðmundsson, Drífa Nadía Thoroddsen og Kolbrún Shalini Árnadóttir.“

Nánar í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.