Staðan í Landeyjahöfn
alfsnes_landey_vegagerdin_is
Dýpkunarskipið Álfsnes í Landeyjahöfn. Ljósmynd/Vegagerðin

Stefnt er að því að mæla dýpið í Landeyjahöfn á morgun eða á föstudag, samkvæmt nýjum upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.

„Spáin er þannig núna að ekki er útlit fyrir að hægt sé að halda áfram dýpkun fyrr en á seinna flóði á föstudag,“ segir Pétur. Herjólfur hefur stefnt að því að sigla um leið og aðstæður leyfa, en það ræðst af stöðunni í höfninni.

„Það mun væntanlega ráðast af niðurstöðu mælinganna og hvernig gengur að halda áfram með dýpkunina. Það verður metið á föstudag reikna ég með,“ segir Pétur.

Staðan í Landeyjahöfn hefur undanfarið haft veruleg áhrif á samgöngur milli lands og Vestmannaeyja, en framundan er fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins og því er beðið með eftirvæntingu eftir niðurstöðum næstu mælinga.

Nýjustu fréttir

Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.