Steinunn sýnir í Einarsstofu
Myndlistakonan Steinunn Einarsdóttir opnar sýningu sína í dag, fimmtudaginn 28. nóvember klukkan 17:00. Steinunn hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar síðan hún flutti heim frá Ástralíu fyrir um 18 árum og mun þessi sýning vera tuttugasta og önnur sýning hennar.
Steinunn útskrifaðist sem “Visual Art and Design” artist frá Barrier Reef Institute of T.A.F.E. Listaháskóla í Townsville. Hún hefur verið að mála og kenna síðan og sýnir árlega afrekstur nemenda sinna þar sem gróskan hefur verið mjög mikil. Sem dæmi má nefna að stofnað hefur verið Myndlistarfélag Vestmannaeyja þar sem efnilegir listamenn halda listinni lifandi með sýningum og uppákomum.
Listvinir Safnahúss bjóða alla velkomna á opnun sýningar Steinunnar í Einarsstofu í dag, fimmtudag kl. 17.
Sýningin verður opin til 11. desember næstkomandi og verður opið virka daga á opnunartíma Safnahúss, mánudaga til fimmtudags 10 til 18 og föstudaga 10 til 17. Vakin er sérstök athygli á því að sýningin er einnig opin laugardaga og sunnudaga klukkan 13 til 16.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.