Stórsigur ÍBV á Létti
ÍBV og Léttir áttust við í dag í 32-liða úrslitum í Borgunarbikar karla en ÍBV vann stórsigur 6-0.
ÍBV hóf leikinn af krafti og var með boltann nánast allan hálfleikinn. Leikurinn fór alfarið fram á vallarhelmingi Léttis, en fyrsta færi Léttis kom undir lok fyrri hálfleiks en en það var hættulaust en Abel hafði lítið annað að gera í markinu fyrir utan það. Dominic Adams skoraði fyrsta mark ÍBV og Jonathan Glenn bætti við öðru markinu og staðan í hálfleik 0-2 fyrir ÍBV.
Síðari hálfleikur var mikið miðjuþjóf framan af Léttir breytti leik kerfi sínu og pressaði ÍBV ofar á vellinum en ÍBV var að spila boltanum vel á milli sín.
�?egar Dominic Adams skoraði þriðja mark ÍBV opnaðist lið Léttis mikið þegar þeir fóru framar á völlinn og ÍBV gekk á lagið. Rich­ard Sæþór Sig­urðsson skoraði fjórða mark ÍBV og það fimmta, tveimur mínútum síðar en hann er fædd­ur 1997 og var að spila sinn fyrsta leik fyrir ÍBV. Dominic Adams skoraði sjötta og síðasta mark ÍBV og innsiglaði þar af leiðandi þrennu sína. ÍBV er því komið í 16- liða úrslitin í Borgunarbikarnum.

Nýjustu fréttir

Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Landsréttur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald
Framkvæmdir í febrúar-blíðunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.