Vilja stækka Strandveg 51
Tillaga að Strandvegi 51

Á 349. fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja þann 28. júní s.l. var kynnt umsókn Davíðs Guðmundssonar, f.h. Eignarhaldsfélags Tölvunnar ehf, vegna deiliskipulagsbreytingar fyrir Strandveg 51. Umrætt hús er á götuhorni Strandvegar og Herjólfsgötu og hefur lengi hýst verslun og þjónustu undir vörumerkinu Tölvun.

Breyting á deiliskipulagi hússins miðar af því að heimila frekari viðbyggingar íbúða við húsið. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi miðbæjarins frá 2015 er heimilt að byggja tvær hæðir ofan á húsið þar sem þriðja hæðin er aðeins hluti flatarmáls neðri hæða.

Samkvæmt gögnum sem ráðið hafði til umræðu með kynningunni stendur til að hækka húsið upp í fjórar hæðir og auka byggingarmagn lóðar úr 849.2 m² í allt að 1.500 m². Hæðir eru misstórar að grunnfleti eftir því sem ofar dregur. Í umsókn kemur fram að við byggingu hússins verði tekið mið að BREEAM vottunarkerfinu sem sem tekur mið að vistvænum byggingarefnum. Húsið einkennist af flötu þaki og þaksvölum sem snúa til suðausturs. Tillagan var unnin af TPZ teiknistofu.

Skipulagsráð var hlynnt breytingunni og var skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Skipulagsbreytingin sjálf verður kynnt til umsagna síðar.

Tillöguuppdráttur húss sem lagður var til kynningar umhverfis- og skipulagsráðs.

Myndband af hugmyndinni:

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.