Stytting Hörgeyrargarðs - Skipulagslýsing

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti 19. janúar 2023 að auglýsa skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Vestmannaeyja vegna styttingar Hörgeyrargarðs.

Horgaeyrargardur1

Skipulagsbreytingin felur í sér að stytta Hörgeyargarð um allt að 90 m. Ráðgert er að nýta efnið sem taka þarf úr garðinum við viðhald á núverandi hafnarmannvirkjum og aðra uppbyggingu á Heimaey eftir þörfum.

Á þeim tíma þegar garðurinn var gerður var höfnin berskjaldaðari fyrir ágangi sjávar. Nú er svo komið að garðurinn þrengir að siglingu stórra skipa um höfnina og þegar skip liggja við Nausthamarsbryggju hafa myndast aðstæður þar sem tæpt hefur staðið á árekstri.

Skipulagsgögnin eru til sýnis hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði Skildingavegi 5, frá og með 24. janúar 2023 til 8. febrúar 2023 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins.

Umsagnir og ábendingar berist skriflega til og með 8. febrúar 2023 á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is eða í Ráðhúsinu að Kirkjuvegi 50.

Nýjustu fréttir

Goslok: dagskrá laugardags
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Kristian Örn
Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu – uppfært
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.