Sumarlokun leikskóla 2022

Umræður um sumarlokun og sumarleyfi leikskólanna sumarið 2022 fóru fram á fundi fræðsluráðs í gær. Undanfarin tvö sumur hafa leikskólar verið lokaðir í þrjár vikur og þá hafa foreldrar/forráðamenn valið tvær vikur til viðbótar þannig að sumarleyfi barns væri fimm vikur. Sumarið 2020 var sumarlokunin 6.-24. júlí og sumarið 2021 12.-29. júlí. Umræður voru um þetta fyrirkomulag og hvernig það hefur reynst og hugmyndir að fyrirkomulagi fyrir árið 2022 reifaðar.

Rætt var á fundinum um að hafa sumarlokunina fjórar samfelldar vikur og foreldrar/forráðamenn kjósi um tvær tillögur að tímabilum sem sumarlokun stendur yfir. Foreldrar/forráðamenn geta síðan, líkt og getið er um í reglum, sótt um auka sumarleyfisviku öðru hvorum megin við sumarlokunina. Sú vika er þá gjaldfrjáls fyrir þá sem kjósa að nýta þann kost. Fræðslufulltrúa er falið að útfæra tillögur að tímabilum sumarlokunar í samráði við stjórnendur leikskóla og ákvörðun um framhaldið tekin á næsta fundi fræðsluráðs.

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.