Tap gegn Fram
ÍBV þurfti að sætta sig við tap þegar liðið mætti Fram á útivelli í gær, lokastaða 33:30.
Jafnræði var með liðunum í leiknum en heimamenn í Fram höfðu þó yfirhöndina þegar gengið var til búningsherbergja í hálfleik, staðan 16:13.
Forystuna létu liðsmenn Fram aldrei af hendi og fór hún mest í fimm mörk í síðari hálfleiknum. Svo fór að leikurinn endaði með þriggja marka mun eins og fyrr segir.
Markahæst í liði ÍBV var Greta Kavaliauskaite með átta mörk en þar á eftir kom Sandra Erlingsdóttir með sjö. Erla Rós Sigmarsdóttir var með tíu skot varin í markinu og Guðný Jenný Ásmundsdóttir sex.

Nýjustu fréttir

Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.