Tap hjá ÍBV í Keflavík
Úr fyrri leik liðanna á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

ÍBV og Keflavík mættust í 20. umferð Bestu deildar karla á HS-Orku vellinum í Keflavík í kvöld, þar sem heimamenn höfðu betur, 1 – 0.

Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og fengu dauðafæri á upphafsmínútum leiksins. Omar Sowe átti þá fyrirgjöf inn á teig Keflavíkur á Sesar Örn Harðarson, sem setti boltann framhjá markinu.

Keflavík tók svo smám saman yfir leikinn og náði forystu á 22. mínútu. Eiður Orri Ragnarsson átti þá góða fyrirgjöf inn á teig Eyjamanna sem Stefan Ljubicic skallaði í netið. Staðan 1 – 0 í hálfleik.

Eyjamenn komu betur inn í síðari hálfleikinn og fengu ágætis tækifæri til að jafna metin. Sigurður Arnar Magnússon fékk mjög gott færi eftir stundarfjórðung en setti boltann framhjá markinu af stuttu færi.

Omar Sowe fékk svo frábært færi undir lok leiksins, en Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, varði vel frá honum. Svekkjandi 1 – 0 tap hjá Eyjamönnum á útivelli því niðurstaðan í kvöld.

ÍBV situr eftir 20 leiki í tíunda sæti deildarinnar með 17 stig. Keflavík er í fimmta sæti með 28 stig.

Úrslit úr leikjum kvöldsins

  • Keflavík 1 – 0 ÍBV
  • ÍA 1 – 1 FH
  • KA 3 – 5 KR
  • Stjarnan 4 -2 Þór
  • 19:15 Víkingur R. – Valur 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.