�?að er afstaða okkar að hagsmuna bæjarbúa sé ekki nægilega vel gætt í dag
�??�?að er afstaða okkar í bæjarstjórn að rekstur Herjólfs sé ekki bara hluti af innrigerð samfélagsins heldur í raun horsteinn innrigerðarinnar. Í honum er fólgin grunnþjónusta í nærumhverfi bæjarbúa. Ítrekað hefur það gerst að ábyrgð á slíkum málaflokkum eru fluttir frá ríki til sveitarfélaga og þá gerist það ekki í gegnum útboð heldur í gegnum samninga milli þessara tveggja stjórnsýslustiga. Dugar þar að vísa til málefna fatlaðra, rekstur grunnskóla, rekstur heilsugæslu og margt fl. Með þessari samþykkt erum við að falast eftir því að taka þetta verkefni yfir á sama máta.
�?að er afstaða okkar hagsmuna bæjarbúa sé ekki nægilega vel gætt í dag. Með þessu er á engan veg máli hallað gagnvart núverandi rekstraraðila enda algerlega kýrskýrt að einkafyrirtæki er eingöngu ábyrgt fyrir því að framfylgja samning en ekki að gæta að samfélgagslegum hagsmunum. �?að er langtum frekar samningurinn sjálfur og eftirlit með honum sem við gagnrýnum. �?ar er hagsmunum okkar ekki nægilega vel gætt og kemur það til að mynda í ljós með hversu fáar ferðir eru sigldar á áætlunartímum, hversu há gjöld eru lögð á okkur í siglingum í �?orlákshöfn og svo margt fl.
Í viðbót við þetta þá hefur hvorki okkur né öðrum bæjarbúum dulist að bæjarstjórn er ítrekað gerð ábyrg fyrir þessum málaflokki og dregst ítrekað inn í umræðuna. �?að er hinsvegar vont að vera gerð ábyrg fyrir einhverju af bæjarbúum en hafa ekki nokkur tök á að hafa bein áhrif. �?á er hreinlega betra að stjórna og bera þannig raunverulega ábyrgð.�??

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.