„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
Ráðherra segir stöðuna fordæmalausa, útilokar ekki hafnarframkvæmdir en telur ekki grundvöll fyrir bótum til fyrirtækja
Eyjólfur Ármannsson. Samsett mynd.

Samgöngur til Vestmannaeyja voru til ítarlegrar umræðu á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í gær þar sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sat fyrir svörum. Á fundinum var meðal annars rætt um stöðu Landeyjahafnar, bilun í Herjólfi, varaskipamál, áhrif á atvinnulíf og fjárhagstjón fyrirtækja í Eyjum. Fundurinn var haldinn að frumkvæði Höllu Hrundar Logadóttur, þingmanns Framsóknar í Suðurkjördæmi.

„Aðstæðurnar nokkuð fordæmalausar“

Ráðherra sagði að staðan í vetur væri óvenjuleg og rekja mætti hana til margra þátta sem hefðu fallið saman á sama tíma. Þar nefndi hann meðal annars mikla og langvarandi ölduhæð, mikið sandflæði inn í Landeyjahöfn, bilanir í dýpkunarskipi og bilun í annarri vél Herjólfs.

„Þannig má segja að aðstæðurnar sem blasa við á þessu ári séu nokkuð fordæmalausar,“ sagði hann.

Þúsund afbókanir nefndar á fundinum

Halla Hrund benti á að áhrif stöðunnar væru þegar farin að bitna verulega á atvinnulífinu í Eyjum. Hún sagði að um þúsund afbókanir hefðu þegar orðið hjá ferðaþjónustuaðilum og að staðan skapaði mikla óvissu, sérstaklega nú þegar stór ferðahelgi væri framundan.

Hún spurði jafnframt hvort tekin hefði verið afstaða til þess tjóns sem fyrirtæki og samfélagið í Eyjum hefðu orðið fyrir vegna truflana á samgöngum.

Ráðherra útilokar bætur

Þegar ráðherra var spurður hvort ríkið hygðist meta eða bæta það fjárhagstjón sem orðið hefði í Eyjum var svar hans skýrt: „Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta það,“ sagði ráðherra.

Hann sagði stöðuna fyrst og fremst rekjanlega til náttúruafla og benti á að ekki væri um sambærilegar aðstæður að ræða og þær sem skapast hefðu í Grindavík. „Við erum ekki að tala um ástandið eins og í Grindavík,“ sagði hann.

„Tveir Herjólfar væru draumastaðan“

Ráðherra sagði jafnframt að til framtíðar þyrfti að horfa til öflugri varalausna í siglingum. „Það væri frábært að það væru tveir Herjólfar að sigla fram og til baka,“ sagði hann.

Að hans sögn þyrfti varaskip að vera sambærilegt aðalferjunni þannig að hægt væri að grípa strax til þess ef upp kæmu bilanir eða aðrar truflanir.

Herjólfur III gæti verið seldur

Ráðherra sagði jafnframt að Herjólfur III gæti verið seldur þegar Baldur hefði fengið nauðsynlega klösun. „Ég tel að við höfum ekki efni á að hafa skip bundið við bryggju sem varaskip,“ sagði hann.

Lítið um skýr svör en fyrirheit um frekari vinnu

Þrátt fyrir að samgönguvandinn í Vestmannaeyjum hafi verið ræddur ítarlega á fundinum komu fá skýr svör fram um bráðaaðgerðir til næstu vikna. Þingmenn úr ólíkum flokkum lýstu yfir áhyggjum af áhrifum á atvinnulíf, öryggi og daglegt líf Eyjamanna, en svör ráðherra lutu að mestu að áframhaldandi vinnu, væntanlegum skýrslum og framtíðaráætlunum.

Boðuð var vinna við ferjuáætlun, vísað var til niðurstaðna frá dönsku straumfræðistofnuninni DHI síðar á árinu og rætt um framtíðarlausnir, en á sama tíma lá fyrir að ekki stendur til að bæta fyrirtækjum tjón vegna ástandsins og enn ríkir óvissa um varaskipamál og framtíð Herjólfs III.

Nýjustu fréttir

„Það er ekki hlutverk ríkisins að bæta þetta tjón“
Tæplega sjö af hverjum tíu sögðu já
Eyjar í óvissu á meðan ráðherra bíður eftir haustinu
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Eyja
Starfsmenn World Class vinna við lokafrágang
Gleðisprengjur sprungu með látum
Samgöngur til Eyja til umræðu á Alþingi í dag
Birna Berg – Íþróttamaður mánaðarins
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.