Þakkir til þeirra sem hafa styrkt Landakirkju og Kirkjugarð Vestmannaeyja

Á heimasíðu Landakirkju kemur fram að undanfarnar vikur og mánuði hafa ýmsir velunnar stutt viðhald og viðbætur í Landakirkju og Kirkjugarði Vestmannaeyja. Skipta þurfti um kross á sáluhliði kirkjugarðsins og tók Skipalyftan að sér að gefa nýjan kross og koma honum fyrir með hjálp Steingríms Svavarssonar, sóknarnefndarmanns. Minningarsjóður Guðmundar Eyjólfssonar og Áslaugar Eyjólfsdóttur styrkti einnig framkvæmdir við lýsingu í garði og á sáluhliði. Þá studdi Skipalyftan kirkjuna við endurbætur á aðstöðu í eldri hluta safnaðarheimilisins með því að gefa málningu til verksins.

Skipt hefur verið um lýsing bæði á kirkjulóð og í kirkjugarði. Vinnslustöðin og Ísfélagið gáfu nýja staura og ljós í kirkjugarð sem var mjög þörf og kostnaðarsöm aðgerð.  Geisli gaf lýsingu á kirkjulóð.

Kirkjugarður Vestmannaeyja fékk svo nýlega styrk til yfirstandandi, nauðsynlegra, stækkunarframkvæmda frá Kirkjugarðasjóði Íslands.

Í kirkjunni verður skipt um teppi í forkirkju, kirkjuskipi og kirkjuturni á næstu vikum og til stendur að mála um leið forkirkju og kirkjuturn. Kvenfélag Landakirkju hefur gefið teppið og Hannes dúkari, Skipalyftan og Eyjablikk hafa stutt við framkvæmdirnar dyggilega.

Í flestum þessara framkvæmda hefur sóknarnefndarmaðurinn Steingrímur Svavarsson gefið vinnu og tengt saman styrktaraðila við kirkju og kirkjugarð.

Án góðvildar og stuðnings væru þessar framkvæmdir ekki mögulegar þar sem greiðslur frá ríkinu standa ekki undir eðlilegum viðhaldsframkvæmdum kirkna og kirkjugarða landsins. Sóknarnefnd Landakirkju og starfsfólk kirkjunnar og kirkjugarðsins vilja því koma fram sérstöku þökkum til ofangreindra aðila fyrir stuðninginn.

Nýjustu fréttir

Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Vara við snjóhengjum og grýlukertum
Staðan í Viðlagafjöru þremur árum eftir fyrstu skóflustungu
S!ll! sendir frá sér nýtt lag og heldur tónleika í kvöld
Óska eftir framlengingu á flugi vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.