�?etta er fín síld, um 400 grömm stykkið
�?að lá vel á Bjarka Kristjánssyni, skipstjóra á Álsey VE, skipi Ísfélagsins, þegar Eyjafréttir slógu á þráðinn til hans rétt fyrir hádegi í gær. Voru þeir út af Austfjörðum í sínum sjötta eða sjöunda túr á síldinni. Makrílvertíðinni hjá þeim lauk um miðjan september og er hann ánægður með útkomuna.
�??Já, við erum á síldinni núna sem tók við af makrílnum,�?? sagði Bjarki. �??�?að gekk ljómandi vel á makrílnum en hvað við fengum mikið veit ég ekki. �?að var bara veitt þangað til kvótinn var búinn.�??
Bjarki sagði að veiðin hefði verið gloppótt undanfarið en þeir voru staddir út af Glettingarnesi í blíðuveðri og toguðu í átt að Seyðisfjarðardýpi. �??Við byrjuðum á síldinni 17. september og fórum með fyrsta farminn til Eyja. �?að er frekar lítið um að vera núna en veiðin hefur verið mest í Norðfjarðar- og Seyðisfjarðardýpi og út af Héraðsflóanum. Núna er veiðin að minnka hérna en þeir eru farnir að fá síld í Smugunni.�??
�?eir hafa landað síðustu túrum hjá Ísfélaginu á �?órshöfn. �??�?etta hafa verið um 700 tonn í túr en Ísfélagið á eftir um 9000 tonna kvóta í norsk-íslensku og Íslandsíldinni og er þetta blandað sem við erum að fá, um 15 prósent af Íslandssíldinni. �?etta er fín síld, um 400 grömm stykkið, þannig að þetta lítur bara vel út,�?? sagði Bjarki að endingu.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.