Þrettán ára sigurvegari í pílu
Verðlaunahafar í fyrsta flokki, f.v. Pétur Rúðrik, Kári Vagn og Lukasz.

Vestmannaeyjar Open pílumótinu sem hófst á föstudaginn lauk í gær með æsispennandi keppni. Parakeppnin var á föstudaginn en í gær var einstaklingskeppnin. Kári Vagn Birkisson, 13 ára stóð uppi sem sigurvegari. Vann landsliðsþjálfarann, Pétur Rúðrik Guðmundsson í úrslitaleiknum. Kári Vagn er mjög efnilegur píluspilari og náði níu pílna legg fyrir ekki svo löngu síðan sem er það besta sem hægt er að ná. Lukasz Knapik og Einar Gíslason spiluðu upp á þriðja sætið og hafði Lukasz Knapik betur.

Í öðrum flokki spiluðu Guðlaugur Gísli Guðmundsson og Ásgeir Lárus Ágústsson til úrslita og hafði Ásgeir Lárus betur. Í þriðja og fjórða sæti enduðu Árni Gunnarsson og Árni Vigfús Karlsson. Í kvenna flokki voru sex keppendur. Sigurvegari var Nadía Ósk Jónsdóttir. Vann hún Arndísi Sif Guðjónsdóttur í úrslitum og í þriðja og fjórða sæti enduðu þær Maria Emma Canete og Svana Hammer.

Keppendur voru alls 58, sex í kvennaflokki og 52 í karlaflokki og var sá elsti 79 ára. Flestir gestanna komu frá Selfossi og Grindavík. Keppt var í sal eitt í Íþróttamiðstöðinni og var aðstaða öll til fyrirmyndar og mótið allt Pílufélagi Vestmannaeyja til mikils sóma.

Pílufélag Vestmannaeyja vill þakka öllum fyrir komuna og hjálpina við að halda þetta mót. Starfsemin er að eflast og verða nýir félagar teknir inn fyrsta október.

Sigurvegari í kvennaflokki, Nadía Ósk Jónsdóttir.

 

Vinningshafi B-flokks, Ásgeir Lárus Ágústsson.

 

Annað sætið í kvennaflokki, Arndís Sif Guðjónsdóttir.

 

Aðstaðan í Íþróttamiðstöðinni skóp mótinu góða umgjöð.

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf
KR-ingur á láni til ÍBV
Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Afslættir hverfa með bættu raforkuöryggi
Jason Stefánsson meðal útskriftarnema FÍV 
Foreign Monkeys gefa út þriðju breiðskífu sína – „III“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.