Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag skv. eftirfarandi áætlun. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 17:00 og 19:30. Brottför frá Landeyjahöfn kl. 10:45, 18:15 og 20:45.
Útlit til siglinga í Landeyjahöfn fyri næstu daga er gott og komum við til með að gefa út siglingaáætlun vonandi síðar í dag eða í síðasta lagi fyrir kl. 06:00 í fyrramálið, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.
Þá er farþegum bent á að á þessum árstíma sé alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.