Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Tómas og félagar eru komnir áfram í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon og félagar hans í Hearts tryggðu sér í kvöld sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Rapid Vín, í seinni leik liðanna.

Tómas Bent kom inn á 15. mínútu, í stöðunni 0-0. Ercan Can kom heimamönnum í Rapid Vín yfir á 35. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik.

Tómas Bent fékk svo að líta rauða spjaldið á 76. mínútu eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald. Þrátt fyrir liðsmuninn tókst Hearts að jafna metin þegar Pierre Landry Kaboré skoraði á 79. mínútu.

Þar sem fyrri leik liðanna lauk með 2-2 jafntefli var staðan því 3-3 samanlagt og þurfti að grípa til framlengingar.

Calvin Miller kom Hearts yfir snemma í framlengingunni og allt stefndi í sigur Hearts. Nenad Cvetkovic jafnaði hins vegar metin fyrir Rapid Vín á lokamínútu framlengingarinnar og því þurfti að ráða úrslitum í vítaspyrnukeppni.

Hearts reyndist sterkari aðilinn í vítaspyrnukeppninni og tryggði sér þar með sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Nýjustu fréttir

Málþing, súpa og spjall
Eyjamenn sækja ÍR heim í bikarnum í kvöld
Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.