Toppurinn var Brekkusöngur

Við erum mjög sátt við þessa Þjóðhátíð á alla lund,“ segir Þór Vilhjálmsson, formaður ÍBV íþróttafélags, sem stendur að Þjóðhátíðinni í Eyjum.

„Veðið lék við okkur og við fengum frábæra gesti. Toppurinn var Brekkusöngurinn þar sem fólkið tók vel undir,“ segir Þór sem játar að frábær aðsókn hjálpi upp á fjárhag ÍBV. Félagið sé sært eftir tvær aflýstar hátíðir. „Þetta er að minnsta kosti plástur á sárin.“

Þetta kemur fram á vefnum Frettablaðið.is

Segir Þór ennfremur að um fimmtán þúsund manns hafi verið í Brekkunni á sunnudagskvöld, þó einhverjir gætu haldið að það væru fleiri. Orðaskil úr söngnum heyrðust hátt upp í Vestmannaeyjabæ samkvæmt heimildum Eyjafrétta og upplifun söngsins ekki síður mögnuð hjá þeim sem áttu ekki heimangengt þetta kvöld. Að loknum Brekkusöngnum var kveikt á 148 blysum, en það er fjöldi hátíða sem haldinn hefur verið frá upphafi.

Í fréttum frá RÚV hefur komið fram að lögreglan segir þetta rólegri Þjóðhátíð en þá síðustu, árið 2019. Einn hafi gist í fangaklefa síðustu nóttina og ein líkamsáras hafi verið kærð. Engin kynferðisafbrot hafi verið tilkynnt þessa hátíðina.

Fimmtán þúsund manna kór hið minnsta í Brekkusöng þetta árið undir stjórn Magnúsar Kjartans.
Að loknum Þjóðsöng var kveikt á blysum sem voru að lokum toppuð með flugeldasýningu af Fjósakletti.

Nýjustu fréttir

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar – varað við óhagstæðri spá
Kiwanis styrkir forvarnastarf samfélagslögreglunnar í Eyjum
Farþegum Herjólfs fækkaði um 24% í október
Fyrstubekkingar myndskreyta jólagjafakort bæjarins
Varað við stormi á Suðurlandi á fimmtudag
Herjólfur stefnir á Landeyjahöfn síðdegis
Norlandair opnar fyrir bókanir í flug til Eyja
Þessi börn vinna lítil kraftaverk á hverjum degi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.