Trölli er mættur til leiks – hræðir, gleður og stelur jólatrjám!

Fyrir jólin birtist hinn hrekkjótti Trölli (Grinch). Trölli er þekktur fyrir að krydda jólaskemmtanir með lúmskum hrekkjum og einstökum húmor, en á sama tíma kemur hann með hlýlegt jólaskap og gleður alla sem á vegi hans verða.

Við hjá Eyjafréttum heyrðum í Trölla og fengum spyrja þennan litríka karakter nokkurra spurninga.

Hvað er það skemmtilegasta við að fá að vera Trölli?

Það skemmtilegasta við að vera Trölli er að fá að hræða og gleðja á sama tíma.

Áttu þér uppáhalds hrekk?

Uppáhaldshrekkurinn minn er 100 prósent að stela jólatrjám hjá fólki með öllu skrautinu á!

Hvers konar viðbrögð færðu frá þeim sem þú hittir?

Viðbrögð krakkana eru þau að sum þeirra gráta og önnur hlægja, en flest gráta þau aðeins fyrst.

Hvað er fram undan hjá Trölla?

Fram undan hjá Trölla er óvissa hann er með svo stórt hjarta eftir síðustu jól, en hann þarf að stækka hjartað fyrir þessi jól hann gæti sést á vappinu.

Hvernig getur fólk pantað Trölla?

Fólk getur óskað eftir því að ná sambandi við Trölla með því að setja lífræna ruslið hjá sér út í glugga eða senda á hann á facebook, annars er hann líka á já.is.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.