Uppboðið skilaði á þriðju milljón
DSC_3950
Auddi fékk kokkablússu og Steindi fékk ÍBV búning merktan Hampiðjunni til að klæðast eftir uppboðið. Eyjar.net/Óskar Pétur Friðriksson

Það var góð stemning á sjómannadagsballinu í Höllinni í gærkvöldi. Þar var boðið upp á glæsilega dagskrá og frábær mat frá Einsa kalda. Veislustjórar kvöldsins voru þeir Auddi og Steindi. Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar mættu með tónlistaratriði. Eyjahjónin Kristín og Sæþór Vídó gerðu slíkt hið sama og Kristó tók einnig nokkur lög. Ballband kvöldsins, Bandmenn sá svo um að loka kvöldinu.

Til góðgerðamála í Eyjum

Að venju fór fram uppboð og skilaði það alls 2.394.000 krónum.

Boðið var í bjórflösku kr. 1,044,000, í jakka Rikka var boðið kr. 500,000. Árituð kokkablússa fór á kr. 450,000 og inni því var falið að Auddi og Steindi kæmu og myndu flytja lag í þjóðhátíðartjaldi þess sem biði hæst í blússuna. Óskar Þór Kristjánsson á von á Audda og Steinda í sitt tjald á Þjóðhátíðinni.

Úr því menn voru byrjaðir að bjóða í fatnað urðu þeir Steindi og Auddi að eftirláta skyrtur sínar sem fóru hvor á kr. 200,000. Alls fengust því kr. 2,394,000,- til góðgerðamála hér í Eyjum.

Söfnunarféð fer á góða staði. Hraunbúðir fá kr. 522,000 og Krabbavörn kr. 1,872,000.
Steindi og Audi urðu að fá lánaðar blússur til að vera í þar sem þeir voru ekki með auka skyrtur með sér, Auddi fékk kokkablússu og Steindi fékk ÍBV búning merktan Hampiðjunni.

Myndir frá skemmtuninni má sjá hér að neðan.

https://eyjar.net/dorgkeppni-kapprodur-og-koddaslagur/

https://eyjar.net/fullt-hus-a-nydonsk/

Nýjustu fréttir

Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.