Væri heiður að fá að spila fyrir Ísland
Aðalmarkmið okkar fyrir tímabilið var að vinna að minnsta kosti einn bikar þannig ég er ánægð með útkomuna,�?? segir Cloé aðspurð út í árangur liðsins á liðnu tímabili. �??Fyrir mig persónulega þá er ég ánægð að ég skoraði meira á þessu tímabili en árið áður, en ég vildi óska þess að ég hefði getað klárað síðustu þrjá leikina líka.�??
�?egar talið barst að íslenskum ríkisborgararétti og íslenska landsliðinu sagðist Cloé vera spennt fyrir þeim kosti. �??�?g mun reyna að fá íslenskan ríkisborgararétt, vonandi mun ferlið byrja núna í nóvember. Ef KSÍ telur sig síðan hafa not fyrir mig í landsliðinu og væri tilbúið til að gefa mér tækifæri þá væri það mikill heiður fyrir mig.�??
Eftir að Cloé flutti frá Kanada hafa tækifærin með landsliðinu þar í landi verið af skornum skammti en samkeppnin mikil hjá eins sterku liði og Kanada. �??�?g hafði tekið þátt í mörgum úrtökum fyrir landsliðið ásamt því að hafa verið partur af yngri landsliðunum. En eftir að ég yfirgaf Kanada og fór að spila í Bandaríkjunum og síðan Íslandi, hef ég ekki fengið mikla athygli frá knattspyrnusambandinu,�?? segir Cloé.
Eins og staðan er núna á Cloé eitt á eftir af samningi sínum við ÍBV og segir hún það hentugt fyrirkomulag að framlengja ekki lengur en í eitt ár í senn. �??�?g er mjög ánægð í Vestmannaeyjum eins og staðan er í dag, samfélagið, starfsfólk ÍBV og liðið hefur alltaf komið afskaplega vel fram við mig. �?g mun samt sem áður bara taka eitt ár í einu, sérstaklega í ljósi þess að ég er að vinna að meistaragráðu samhliða fótboltanum,�?? segir Cloé að endingu.

Nýjustu fréttir

Fótboltasumarið gert upp hjá yngri flokkum ÍBV
Foreldrafundur um Kveikjum neistann á morgun
Varamótorar Herjólfs inni í fjárlagafrumvarpinu
Malbikun hafin – Sólhlíð og Kirkjuvegur næst á dagskrá
Arnar Pétursson valdi 18 leikmenn fyrir vináttuleiki gegn Póllandi
Yfirtaka á úrgangsþjónustu kallar á verulega fjárfestingu
VestExpo27 verður haldin í Goslokavikunni
Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.