Veðurguðirnir samfögnuðu Eyjamönnum þegar Bikarmeistarnir komu heim með bikarinn
�?ær voru ótrúlegar móttökurnar sem Bikarmeistarar ÍBV í handbolta fengu þegar þeir komu heim með bikarinn í gærkvöldi. Klukkan var farin á halla í tólf á miðnætti þegar Herjólfur lagðist að bryggju en Eyjamenn létu að ekki á sig fá, fólk á öllum aldri stormaði niður á bryggju til að fagna hetjunum. Og hafi einhver efast um að Guð almáttugur haldi með ÍBV þá hvarf sá efi í gærkvöli því veður var eins gott og það getur orðið á þessum árstíma, blankalogn og bjart. Eitthvað sem Eyjamenn hafa ekki séð í margar vikur. �?að gerði sitt til að skapa stemmningu sem ekki verður með orðum lýst og mun seint líða strákunum úr minni. Að venju var skotið upp flugeldum og blys loguðu á Heimakletti, Miðkletti og Ystakletti. Erfitt er að segja til um hvað margir voru samankomnir til að samfagna Bikarkeisurunum en þeir voru eitthvað á milli 1000 og 2000 manns.
Á eftir var sigurhátíð í Höllinni og á Háaloftinu fyrir strákana þar sem frítt var inn.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.