Vestmannaeyjar í sérflokki á landsbyggðinni
Fasteignaverð í Vestmannaeyjum hefur tvöfaldast frá þriðja ársfjórðungi ársins 2008. Er það í algjörum sérflokki samanborið við önnur byggðarlög á landsbyggðinni. �?etta er meðal þess sem kemur fram í nýrri hagsjá Landsbankans.
Í sveitarfélögunum sem voru skoðuð var fermetraverð hæst á Akureyri eða um 220.000 krónur á fermetrann. �?að er 74% af verðinu sem boðið er upp á á höfuðborgarsvæðinu. Lægsta verðið var í Fjarðabyggð eða um 134.000 krónur á fermetrann.
Verðþróun í flestum bæjarfélögum hefur verið sambærileg verðþróun á höfuðborgarsvæðinu ef Vestmannaeyjar eru undanskildar. �?nnur bæjarfélög sem litið var á eru Akranes, Reykjanesbær, Fjarðabyggð og Árborg.
Rétt er þó að taka fram að breytingar á verði segja ekki alla söguna um stöðuna á fasteignamarkaði. Hlutfall fjölbýlis og sérbýlis er misjafnt eftir bæjarfélögum og það hefur áhrif á meðalverð þar sem fermetrinn í fjölbýli er yfirleitt dýrari.
Að lokum má nefna að hækkun húsnæðiskostnaður hefur verið ein helsta skýring verðbólgu undanfarin misseri. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur aðeins hækkað um prósent á síðustu tveimur árum en hækkun verðlags í heild mælist um fjögur prósent.
visir.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.