Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Gígja Óksarsdóttir, Unnur Líf Ingadóttir Imsland, Drífa Þöll Arnardóttir og Kári Bjarnason með nýju bækurnar á bókasafninu. Ljósmynd: Vestmannaeyjar.is

Úrval lesefnis fyrir unga lesendur hefur aukist á Bókasafni Vestmannaeyja með tilkomu nýrra léttlestrarbóka frá vestmannaeyska fyrirtækinu Út fyrir bókina.

Fyrirtækið sérhæfir sig í gerð lesefnis, lesskilningsverkefna og stærðfræðiverkefna fyrir byrjendur. Höfundar námsefnisins eru Unnur Líf Ingadóttir Imsland og Snjólaug Árnadóttir, grunnskólakennarar með áralanga starfsreynslu sem starfa sem umsjónarkennarar á yngsta stigi.

Þær hófu árið 2019 að útbúa eigið námsefni þar sem þeim þótti skorta efni sem höfðaði nægilega vel til nemendahóps þeirra. Verkefnið hófst í litlum Facebook-hópi en óx jafnt og þétt og varð síðar að vefsíðunni utfyrirbokina.is.

Bækurnar fáanlegar til útláns

Skólar og einstaklingar geta gerst áskrifendur að námsefninu á vefsíðu Út fyrir bókina. Bókasafn Vestmannaeyja ákvað hins vegar að ganga skrefinu lengra og lét prenta bækurnar í samstarfi við höfundana. Þær eru nú fáanlegar til útláns á safninu.

Íslandsbanki styrkti útgáfu bókanna myndarlega. Á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að starfsfólk safnsins sé spennt fyrir þessari nýju viðbót og hvetji unga lesendur til að líta við. Sumarlestur Bókasafnsins sé jafnframt enn í fullum gangi.

Nýjustu fréttir

Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.