„Við erum orðin skuldlaus“
lotto
Mynd/samsett

Ungt par fékk heldur betur óvænt símtal á mánudagsmorgun. Parið, sem er á þrítugsaldri og á lítið barn saman, var í fríi og á akstri þegar síminn hringdi.

Erindið var sannarlega ánægjulegt. Parið átti nefnilega eina Lottómiðann þar sem allar tölurnar voru réttar síðasta laugardag. Fyrsti vinningur var fimmfaldur og fær parið því rúmlega 96,5 skattfrjálsar milljónir í sinn hlut.

Vinningshafinn, sem fulltrúi Getspár hringdi til, sagðist hafa séð að vinningurinn gekk út á miða keyptan í Lottóappinu. Honum datt þó ekki í hug að miðinn gæti verið hans þar sem engin tilkynning hafði borist í appinu eins og áður, þegar hann hafði hlotið smærri vinninga.

„Ég var alveg sannfærður um að ég hefði ekki unnið,“ útskýrði hann. Þegar honum varð ljóst hvert erindið var þurfti hann að keyra út í vegkant og leggja bílnum.

„Guð minn góður! Ertu ekki að grínast? Vá, ég trúi þessu ekki!“ Eftir smá stund, þegar vinningshafarnir höfðu náð að meðtaka upplýsingarnar, rann svolítið upp fyrir þeim.

„Við erum orðin skuldlaus!“

Það fyrsta sem parið ætlar að gera er að greiða upp húsnæðislánið sitt. Vinningurinn hjálpar einnig til við að láta draum um framhaldsnám rætast, því nú þarf ekki að taka námslán.

„Þetta gefur okkur svo mikið frelsi og öryggi,“ sögðu vinningshafarnir ungu, í skýjunum yfir þessum gleðitíðindum, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.