Vill bæta búsetumál fatlaðra
Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær var eftirfarandi bókun gerð:
Bæjarstjórn Vestmannaeyja ítrekar það sem áður hefur komið fram um mikilvægi þess að á nýhöfnu kjörtímabili verði ráðist í framkvæmdir vegan búsetumála fatlaðra sem veitir fötluðum möguleika á sjálfstæðri búsetu. Sérstaklega þarf að horfa til þess að slík úrræði verði byggð upp í miðbænum þar sem verslun og ýmis önnur þjónusta verður þar með aðgengilegri og þjónustþeginn á þar með auðveldara með að bjarga sér sjálfur í hinu daglega amstri. Sérstaklega þarf að huga að því að nýta sem best samlegð með Sambýlinu við Vestmannabraut 58b.
�?llum má ljóst vera að þörfin fyrir ný búsetuúrræði er aðkallandi. Svo mjög að mikilvægt er að til aðgerða verði gripið á nýhöfnu kjörtímabili.
Bókunin var samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Nýjustu fréttir

Stjórnendur Herjólfs gestir á laugardagsfundi í Ásgarði
Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.