Viltu hafa áhrif 2023 – Átján fengu styrk

Í dag fengu 18 verkefni styrk í tengslum við Viltu hafa áhrif. Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs afhenti styrkina og skrifað var undir samstarfssamning um hvert verkefni. Meðfylgjandi er list með þeim verkefnum er hlutu styrk.

 

  1. Leturstofan – 400.000 kr.

Fá listamann til að mála listaverk á vegg Leturstofunnar að Vestmannabraut sem lýsir sögu hússins.

  1. Hjólafélag Vestmannaeyja – 500.000 kr.

Styrkur til stígalagna, nýrra stíga og endurbóta og lagfæringa á öðrum stígum.

  1. Lista- og menningarfélag Vm, útilistasýning – 450.000 kr.

Bæta við trönum og halda stóra og veglega útilistasýningu árið 2023

  1. Lista- og menningarfélag Vm, smiðjudagar – 500.000 kr.

Bjóða ungu fólki á opnar vinnustofur til að kynnast allskonar handverksgerð, myndlist og ljósmyndun. Verkefnið unnið í samvinnu við smiðjudaga í GRV.

  1. Áhugahópur um Sigmund Jóhannsson – 400.000 kr.

Sýningar á völdum teikningum úr safni Sigmundar auk þess að efna til dagskrár þar sem þjóðþekktir einstaklingar minnast meistara skopteikninganna. Hugmyndindin er að dagskráin verði í maí 2023 og sýningarnar verði frá þeim tíma og út árið 2023

  1. Lista- og menningarfélag Vm, sýning á Matey – 200.000 kr.

Sýning verður á Matey í tengslum við hátíðina þar sem konan í sjávarsamfélaginu yrði viðfangsefni listmanna.

  1. Magnúsarbakarí 100 ára – 500.000 kr.

Afkomendur Magnúsar Bergssonar vilja setja upp minnisvarða og sýningu til minningar um Magnúsarbakarí fyrir goslokahátíð 2023. Lítill minnisvarði eða jafnvel setbekkur að Heimagötu 4. Sýning með myndum og fróðleiksmolum um Magnúsarbakarí.

  1. ÍBV-íþróttafélag, Blazepod – 350.000 kr.

Blazepod tæki, nýtist vel í þjálfun á snerpu, í markmannsþjálfun og æfingum tengdnum fótavinnu.

  1. Heimaslóð – 750..000 kr.

Uppfærsla á Heimaslóð og að sótt verði um viðbótarkerfi verði sett upp til að styðja betur við kort og staðsetningartæki snjalltækja.

  1. CrossFit Eyjar – 300.000 kr.

Styrkur til að bjóða nemendum GRV aðgang að ókeypis CrossFit æfingum. Námskeið1x í viku í 3 mánuði. Kynna Cross-fit fyrir krökkunum.

  1. Pysjueftirlitið – 200.000 kr.

Styrkur til að starfrækja pysjueftirlitið 2024 og þá mun styrkur notaður til að auglýsa pysjueftirlitið betur fyrir ferðamenn og reyna að gera pysjueftirlitið sterkara til að takast á við áskoranir í framtíðinni. Fjölga vigtunarstöðum

  1. Listasýningin Konur í sjávarsamfélaginu – 500.000 kr.

Að fá listafólk í Vestmannaeyjum og víðar til þess að koma fram með mismunandi útfærslur á hlutverki kvenna í sjávarsamfélögum og ætlunin er að eiga samstarf við Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja og listafólk sem kemur víðar að og sýna verkin sín í september 2023.

  1. Listasmiðja náttúrunnar – 400.000 kr.

Listasmiðja fyrir börn í Vestmannaeyjum á aldrinum 6-12 ára. Í listasmiðjunni sækja þátttakendur innblástur í nærumhverfi og náttúrun, fara í vettvangsrannsóknir og skissa úti. Kynnast ólíkum aðferðum við listsköpun og skissuvinnu og vinna með efnivið úr náttúru Vestmannaeyja og fá kennslu í nýjungum í listsköpun frá listgreinamenntuðum kennurum.

  1. Hollvinasamtök Hraunbúða – 350.000 kr.

Styrkur til tónleikahalds veitingum fyrir heimilismenn og aðstandendur. Tveir árlegir tónleikar.

  1. Taflfélag Vestmannaeyja – 400.000 kr.

Atskákmót í tilefni af 50 ára goslokaafmæli

  1. Rafíþróttafélag ÍBV (Jón Þór Guðjónsson) – 500.000 kr.

Styrkur til LAN mótahalds í Eyjum.

  1. Handknattleiksdeild ÍBV – 300.000 kr.

Flugeldabingó

  1. Handknattleiksdeild ÍBV – 500.000 kr.

Handboltaskóli 2023.

 

Mynd: Hópurinn ásamt Njáli.

 

Nýjustu fréttir

„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.