Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu
Héraðsdómur Suðurlands hefur kveðið upp dóm
Huginn VE siglir inn Vestmannaeyjahöfn.

Héraðsdómur Suðurlands kvað í dag upp dóm í skaðabótamáli vegna skemmda á vatnslögninni NSL-3 og ljósleiðara í Vestmannaeyjahöfn. Samkvæmt yfirlýsingu sem Vinnslustöðin birti á vef sínum voru Vinnslustöðin hf., Huginn ehf. og VÍS tryggingar hf. sýknuð af kröfum stefnenda.

Í yfirlýsingunni segir jafnframt að viðurkennt hafi verið að Huginn ehf. og VÍS tryggingum hf. sé heimilt að takmarka ábyrgð sína. Þá hafi dómurinn ekki fallist á að Vinnslustöðin hf. teldist útgerðarmaður skipsins og málskostnaður hafi verið felldur niður.

Þar kemur einnig fram að útgerð Hugins telji dóminn mikilvægt skref í úrlausn málsins, en að líklegt sé að málinu verði áfrýjað og því verði ekki tjáð sig efnislega um niðurstöðuna að svo stöddu.

Eyjafréttir munu greina nánar frá forsendum dómsins þegar hann verður birtur opinberlega.

Nýjustu fréttir

Blíðskaparveður og líf um allan bæ á Goslokahátíð
Vinnslustöðin, Huginn og VÍS sýknuð í vatnslagnarmálinu
Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna
Eyjalistinn gagnrýnir að hafa ekki verið boðaður til fundar með forsætisráðherra
Vinnupása skilaði vinning
Patr!k með óopinbert Þjóðhátíðarlag
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Alfreð Týr
Sólarlag hljómar í Eldheimum á Goslokum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.