Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Vinnslustöðin. Eyjar.net/Tryggvi Már

VSV Portugal, dótturfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, hefur keypt portúgalska sjávarútvegsfyrirtækið Esbal. Kaupin eru liður í áframhaldandi uppbyggingu Vinnslustöðvarinnar á Portúgalsmarkaði og eiga að styrkja stöðu félagsins þar í landi.

Esbal er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á útvötnuðum saltfiski. Vörur fyrirtækisins eru meðal annars seldar til veitingahúsa og í neytendaumbúðum.

Vinnslustöðin hefur á undanförnum árum byggt upp umfangsmikla starfsemi erlendis. Samstæðan rekur nokkur sölufélög utan Íslands auk fiskvinnslu í Portúgal. Með kaupunum á Esbal eykst starfsemi VSV Portugal og möguleikar félagsins til að þjónusta viðskiptavini sína á portúgalska markaðnum styrkjast enn frekar.

Kaupin eiga jafnframt að skapa tækifæri til frekari vaxtar og samlegðar í framleiðslu, sölu og dreifingu sjávarafurða. Portúgal er mikilvægur markaður fyrir saltfisk og er neysla slíkra afurða þar rótgróinn hluti af matarhefð landsins.

Frá kaupunum er greint á vef Vinnslustöðvarinnar. Þar segir að með kaupunum styrki VSV Portugal stöðu sína á portúgalska markaðnum og skapi grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.