VKB gegn yfirgengilegum hroka og yfirgangi Fyrirmyndar bílstjóra

Árið 1998 urðu hinsvegar miklar breytingar á samfélagi Eyjanna, allar til mikils batnaðar, þegar stofnaður var félagsskapur ungra fallegra manna sem vildu, ólíkt áðurnefndu villimannafélagi, hafa góð áhrif á samfélagið, láta gott af sér leiða og vera fyrirmynd ungra jafnt sem aldraða. Félag þetta er að sjálfsögðu Bræðrafélagið VKB. Á aðeins þessum níu stuttu árum hefur ánægja og gleði meðal bæjarbúa aukist stórum. Fólk er almennt mun bjartsýnna og ef vel er að gáð má jafnvel sjá stjörnublik í augum unga fólksins. VKB menn hafa fært gleði í hjörtu bæjarbúa með allskyns uppákomum og hjálpað þeim sem minna mega sín. �?líkt fyrirrennurunum í Fyrirmyndar bílstjóra félaginu, sem einungis eru til ama hvar sem þeir koma.
Nú eru lesendur líklegast farnir að spyrja sig hvað fái undirrtiaðan til að reyna að bera saman þessi tvö félög, sem greinilega eru jafn ólík og epli og appelsínur. Ástæða þess er einföld, við VKB bræður getum ekki lengur staðið aðgerðalausir meðan við verðum æ ofaní æ vitni að yfirgengilegum hroka og yfirgangi meðlima Fyrirmyndar bílstjóra félagsins. �?ví höfum við skorað þá á hólm, og ætla fulltrúar félagana að mætast á miklu íþróttamóti í föstudaginn 6. júlí. Mótið, sem haldið er til heiðurs einum merkasta syni Eyjanna, sjálfum Sigga Reim, kallast Reimleikar og verður svo stórt og glæsilegt í sniðum, að allt fór í háaloft innan alþjóðaólympíunefndarinnar er hún frétti af áætlunum okkar varðandi Reimleikana. En það var þó sjattlað yfir einum kaffibolla, þegar fulltrúar mótshaldara komu þeim í skilning um að á engan hátt stæði til að skyggja á ólympíuleikana. Sem breytir því þó ekki, að við VKB menn komum til með að sópa göturnar með Fyrirmyndar bílstjórum.

Með bestu kveðju Helgi �?lafsson
Forseti VKB

Nýjustu fréttir

Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Ferðaþjónustan er öflug atvinnugrein sem þarf tryggar samgöngur
Gul viðvörun á Suðurlandi: Búist við þrumuveðri
Evrópudagur talþjálfunar er í dag
Forsala á Þjóðhátíð 2026 hafin
Hitastig sjávar að vetri aldrei verið hærra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.