Vonbrigði á sunnudagsmorgni
�?g kom því í verk seint í gær að horfa á þátt Gísla Marteins �??sunnudagsmorgun�??. �?ar kenndi eins og endranær ýmissa grasa. Umræðan er nánast eins og stuttur facebookþráður. Ekki ætlast til að efnið sem spannað er sé nema í samræmi við þetta form. Knöpp umgjörð þar sem leitað er eftir kjarnanum án mikils hismis. Heilt yfir er niðurstaðan léttleikandi þáttur þar sem málin eru rædd á þann knappa máta sem einkennir samtímann. Í gær varð ég hinsvegar fyrir vonbrigðum með þann viðmælanda sem ég bar mestar væntingar til.
Í sjálfhverfu minni hafði ég nokkurn áhuga á viðtali við Benedikt Erlingsson listamann sem kominn var til að ræða menningarpólitík. Efni sem ég hef mikinn áhuga á og hef reynt að taka þátt í að ræða á málefnalegan máta.
Nakinn keisari
�?g hef lengi haft nokkrar mætur á Benedikti. Fundist hann hafa ákveðna dýpt sem mér hefur þótt heillandi. Vissi svo sem vel að við værum fullkomlega ósammála þegar kemur að stjórnmálum. Hann til vinstri og ég til hægri. �?að hefur aldrei truflað mig í mati á fólki og þess vegna hlakkaði ég til að hlusta á hann og gaumgæfa skoðanir hans. Vonir stóðu jafnvel til þess að ég gæti nýtt mér hugsanir hans til að þróa og bæta mínar eigin. Til að gæta sanngirni verður að viðurkennast að mér þótti margt ágætt í tali hans. Hvernig hann lýsti mikilvægi menningar og áherslu á ákveðið jafnvægi í umræðu. Um flest slíkt var ég honum sammála. Menning er okkur nauðsynleg, um það þarf ekki að efast. Annað varð hinsvegar til að minna á nakinn keisara spígspora um eigin hugmyndakerfi, þess fullviss að lýðurinn væri jafn uppnuminn af skoðanamúnderingunni og hann sjálfur. �?að urðu mér vonbrigði.
Ritskoðun listamanna á R�?V
Eins og ég átti von á varði Benedikt fjárframlög til lista og þar með talið til reksturs R�?V. Meðal sterkra raka sem hann setti fram var að þar færi fram gagnrýnin umræða. Djúp umfjöllun þar sem tekið væri á samfélagsmeinum og mál rædd og reifuð í þeim tilgangi að þróa umræðuna. Snerta á sem flestum flötum. Síðan allt í einu skipti hann um gír og lýsti undrun sinni á því að ég (og þar með skoðanir mínar) fengju “plattform” í þætti Gísla. �?ar með stóð Benedikt -illu heilli- eftir sem berskjaldaður hagsmunatengdur aðili sem vill nýta R�?V sér og sínum til framdráttar. �?eir sem hafa andstæða skoðun hafa ekkert þangað að gera og nánast tímasóun að vera að ræða slíkt. Um leið var maður minntur á þær 600 milljónir sem varið er í listamannalaun. Allt í einu sat ekki þessi djúptþenkjandi brekka í stólnum heldur maður sem hefur meðal annars afkomu af ríkisstyrkjum til kvikmyndagerðar (kvikmyndasjóður) sem koma til með að nema 625 milljónum á næsta ári. Maður sem ef til vill finnur það á eigin buddu ef framlögin til �?jóðleikhússins lækka. Mig satt að segja langaði meira að hlusta á hann án þess að hann væri að minna mig á þessar hliðar.
Listamaður með 5.bekkjar húmor
Við ýmis tækifæri hef ég bent á þá leið sem listamenn fara í vörn sinni. Að nota háð og spott um ummælendur. Að gera lítið úr persónum, útliti þeirra eða öðru, í stað þess að ræða málefnin. �?að þykir mér ætíð lítilmannlegt og þá sérstaklega ef viðkomandi eru ekki á staðnum til að svara fyrir sig. Benedikt er góður húmoristi. �?g sem unnandi margs af því sem hann hefur gert átti því von á að hann myndi þá að minnsta kosti hafa þá dýpt til að bera að þegar hann beitti þessari klassísku hæðni þá yrði það vel gert. En nei takk. Hann notaði uppnefni um mig sem ég heyrði síðast í 5. bekk barnaskóla þar sem snúið var út úr nafni mínu. Reyndar dugði það til að vekja aðhlátur þáttastjórnandans og þannig að til einhvers var unnið hjá listamanninum.
Framlög til lista réttlæt með tilvísun í skattafslátt til sjómanna sem búið er að afnema
Listamaðurinn fór einnig víða í leita að réttlætingu fyrir óbreyttum og jafnvel auknum framlögum til menninga og lista. Eitt af þeim hálmstráum sem seilst var eftir var tilvísun í skattafslátt til sjómanna sem dvelja, eins og alþjóð þekkir, oft langdvölum frá fjölskyldum sínum. �?að hefur sjálfsagt farið framhjá listamanninum að það er búið að afnema þennan skattafslátt og kemur slíkt til framkvæmda nú strax á nýju ári. Sú ákvörðun virðist hafa farið framhjá bæði listamanninum og þáttastjórnandanum enda var ekki boðað til funda í Háskólabíó né slíkt rætt ítarlega í fréttaskýringum.
�?flugur maður sem getur betur
Eftir sem áður verður Benedikt í ákveðnu uppáhaldi hjá mér. Djúpthugsandi listamaður, góður leikari og án efa ein bjartasta von okkar Íslendinga í leikstjórn. Næst nær hann ef til vill að ræða mál í samræmi við það. Hver veit. �?g held að minnsta kosti að það yrði betra fyrir þann málstað sem hann er að reyna að verja.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.