VSV, Okada Susian og Stefán kynna sjávarafurðir í Japan

Risastór sjávarútvegssýning stendur nú yfir í Tokyo í Japan, sú 24. í röðinni. Þar er að vonum margt um manninn meðal sýnenda og gesta. Vinnslustöðin og Okada Susian, fyrirtækið sem VSV er meðeigandi í, taka að sjálfsögðu þátt í sýningunni og þá átti aldeilis vel við að sendiherra Íslands í Japan, Eyjapeyinn Stefán Haukur Jóhannesson, væri viðstaddur opnunarathöfnina!

Á sýningunni, sem ber enska heitið The Japan International Seafood & Technology Expo, er kynnt allt sem nöfnum tjáir að nefna af japönskum og innfluttum sjávarafurðum. Þar er líka kynnt tækni og frumkvöðlastarf í framleiðslu sjávarfangs af öllu mögulegu tagi. Fljótlegra væri líklega að telja upp það sem ekki er sýnt þarna.

Standandi til vinstri á myndinni eru Yohei Kitayama, sölustjóri Vinnslustöðvarinnar í Japan, og Stefán Haukur sendiherra í Tokyo.

Af heimasíðu Vinnslustöðvarinnar – vsv.is

Nýjustu fréttir

Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Áskorun til Vestmannaeyinga 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.