YFIRLÝSING FRAMKVÆMDASTJÓRA VSV VEGNA ÁLYKTUNAR VERÐANDA

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni þess að stjórn og aðalfundur Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda samþykkti að lýsa yfir „vanþóknun á hendur framkvæmdastjóra og hluta stjórnar Vinnslustöðvarinnar“ vegna starfsloka skipstjórnarmanna á Hugin VE-55.

Framkvæmdastjórinn vill koma eftirfarandi á framfæri að gefnu þessu tilefni:

1. Skoðun Vinnslustöðvarinnar á upptökum úr öryggismyndavélum leiddi í ljós að öryggisloki (keðjustoppari) akkeris Hugins, sem kemur í veg fyrir að akkeri falli ef bremsa á spili er losuð, hafði verið opinn í sex vikur áður en óhappið varð í innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn 17. nóvember 2023.

2. Spil og öryggisloki/keðjustoppari hafa verið prófuð eftir atvikið. Reyndist hvoru tveggja í fullkomnu lagi og héldu akkeri á sínum stað. Réttur frágangur og eftirlit með öryggisbúnaði um borð í skipi er á ábyrgð skipstjóra hverju sinni.

3. Í ljós hefur komið að um var að ræða annað skiptið á tveimur árum þar sem akkeri tapaðist af Hugin. Á því atviki hafa hvorki fengist skýringar né hvort og þá hvernig brugðist hafi verið við, til að mynda með reglulegu eftirliti til að fyrirbyggja að svona nokkuð endurtæki sig.

4. Sjópróf vegna atviksins eru ákveðin 30. janúar 2024. Sjópróf eru skýrslutökur fyrir dómi til að varpa ljósi á aðdraganda og afleiðinga atviksins sem tjónþolar hafa óskað eftir. Sjópróf koma því ekki til álita þegar fjallað er um afleiðingar á borð við þær hvort menn haldi störfum sínum eða ekki.

Mat mitt sem framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar hf. var að í aðdraganda atviksins hefðu skipstjórnarmenn Hugins ekki rækt skyldur sínar með viðunandi hætti, eins og að framan er lýst. Því var ekki annað verjandi en að gera starfslokasamninga þá. Við það mat stend ég.

Stjórn Verðanda hefur ekki óskað eftir fundi með mér eða aflað upplýsinga frá Vinnslustöðinni hf. vegna atviksins. Í því ljósi sætir þessi ályktun félagsins furðu. Ég er reiðubúinn til að hitta stjórn Verðanda hvenær sem er og fara yfir málið.

Nýjustu fréttir

Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Áskorun til Vestmannaeyinga 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.