�??Sonur minn á svo auðvelt með að tala um þetta. Hann var áður með innbirgða reiði en við þjálfuðum okkur í að ræða um tilfinningar okkar. Hann á því mjög auðvelt með þetta í dag,�?? segir Jóhanna.
Jóhanna bað um leyfi hjá syni sínum áður en hún gerði myndbandið um söguna hans og tók hann vel í þessa hugmynd. Sagði hann þá strax við móður sína: �??Ef að þú getur hjálpað einhverjum öðrum þá er það frábært.�??
Jóhanna fékk frábært símtal í gær frá einum föður sem sagði henni að sonur sinn hafi byrjað að ræða einhverfu sína eftir að hafa séð myndbandið. Hann hafði alltaf átt erfitt með að tjá sig um þessi mál áður. �??�?etta hafði mjög sterk áhrif á hann,�?? sagði Jóhanna en Gísli Hrafn var alveg í skýjunum þegar hann heyrði að sagan væri að hjálpa öðrum börnum. �??Hann er mjög stoltur,�?? segir Jóhanna að lokum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.