Lítið um lundapysjur í Eyjum

Aðeins fjórar lundapysjur hafa verið vigtaðar í þessum mánuði í Vestmannaeyjum og er ljóst að pysjutímabilið verði með svipuðu móti og það hefur verið undanfarin þrjú ár, en ætisskortur í sjónum hefur haft áhrif á varp lundans líkt og hjá fleiri sjófuglum.

Að sögn Kristjáns Egilssonar, forstöðumanns Náttúrugripasafnsins í Vestmannaeyjum, ætti hátindur pysjutímabilsins að vera núna, þ.e. seinni hluta ágústmánaðar. Hann segir að ef allt væri með eðlilegu móti myndu á bilinu 5.000 – 6.000 lundapysjur koma í þessum mánuði í bæinn.

Kristján segir að lundinn hafi orpið seinna í ár líkt og síðustu ár. „Það verður bæði seint og lítið sem kemur af pysju,” segir Kristján og bætir því við að ef meira komi af pysju þá megi búast við því í byrjun september. „Það verður hinsvegar aldrei mikið því lundinn fer svo að fara […] Í byrjun september þá fer hann bara, en þá er tímaklukkan komin á hann að koma sér í burtu.”

Hann segir þær pysjur sem hafi verið vigtaðar líti vel út. Þær vega á bilinu 250 – 260 grömm, sem sé ágætt. Hefð er fyrir því að börn á öllum aldri vigti og skrái pysjurnar.

Nýjustu fréttir

Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.