Hermann spilar á móti Chelsea í dag
Created by PhotoWatermark Professional
Created by PhotoWatermark Professional

Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth spila í dag á móti Chelsea í enska boltanum á heimavelli Chelsea. Hemmi og félagar hafa byrjað frábærlega og eru þeir ósigraðir það sem af er móti. Hermann hefur spilað vel með Portsmouth frá því að hann samdi við liðið eftir að Charlton féll um niður úr úrvaldsdeildinni.

Hannover 96 lið Gunnar Heiðars Þorvaldssonar heldur í dag til Munchen og leikur gegn Bayern Munchen. Gunnar Heiðar er ekki í 18 manna leikmannahópi Hannover og er staða hans hjá liðinu orðin erfið þrátt fyrir að hann hafi skorað í landsleik Íslands – og Kanada á miðvikudaginn.

Á morgun sunnudag leikur Margrét Lára Viðarsdóttir með landsliði Íslands í knattspyrnu við Slóveníu þar ytra. Leikurinn er í riðlakeppni fyrir EM í fótbolta. Kvennalandsliðið hefur staðið sig frábærlega og á góðan möguleika að verða fyrsta A landslið Íslands að komast á stórmót. Leikurinn er sýndur á RÚV í beinni útsendingu og hefst útsending klukkan 14:55.

Birkir Ívar Guðmundsson markmaður TUS Lübbecke í þýska handboltanum leikur í dag á móti Flensburg. Um helgina byrjar handboltavertíðin í Þýskalandi og spennandi verður að fylgjast með árangri Birkis Ívars og félaga.

 

Nýjustu fréttir

Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.