Bloggandi sjóarar á hafi úti.

Í dag býðst útgerðum sá möguleiki að koma upp nettengingu um borð í skip sín, nokkur skip í eyjum hafa komið upp þannig búnaði. Með þessu opnast sá möguleiki að áhafnir eða áhafnameðlimir geta leyft vinum og vandamönnum að fylgjast betur með lífinu um borð.

www.huginn.is er líklega vinsælasta bloggsíða áhafna í dag enda eru hinir fjórir fræknu bloggar þar um borð þekktir fyrir góðan húmor og er oft stutt í hláturinn við lestur þessarar síðu.

http://www.blog.central.is/sturlungar áhöfnin á Snorra Sturlusyni hefur komið sér upp vefsíðu og er að færast líf inn á þá síðu. Þá má sjá lista yfir áhafnameðlimi ásamt myndum

http://www.123.is/tobbivilla Þorbjörn Víglundsson er í áhöfn Guðmundar VE og er Tobbi með mikið af myndum og myndböndum af sjónum á sinni síðu. Á síðu Tobba eru nánast daglegar fréttir af lífinu um borð.

Nýjustu fréttir

Sjónarhorn flakkarans á nýja hrauninu
Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar
Íslenska neiið fer um heiminn – fiskurinn í aðalhlutverki
Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.