Helstu verkefni lögreglu frá 24. september til 1. október 2007.

Töluverður erill var hjá lögreglunni í sl. viku og um helgina og fengu fjórir að gista fangageymslur lögreglu um helgina. Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur.

Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir skemmtana hald helgarinnar og átti árásin sér stað í heimahúsi. Ósætti urðu á milli tveggja íbúa í húsinu sem endað með átökum.  Ekki var um alvarlega áverka að ræða.

Fjögur eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu um helgina og áttu þrjú af þeim sér stað sl. laugardag og það fjórða á sunnudag. 

Laust fyrir hádegi á laugardaginn var lögreglu tilkynnt um að útidyrahurð í húsi í austurbænum hafi verið sparkað upp og hún skemmd.  Þarna hafði orðið einhver ósætti á milli húsráðanda og manns sem var þar gestkomandi.  Málið leystist hins vegar með aðkomu lögreglu að því. 

Þá var lögreglu tilkynnt um skemmdir á tveimur bifreiðum er stóðu við Hamarsskóla á laugardagsmorgun en hliðarspeglar á bifreiðunum höfðu verið skemmdir. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki og hvetur lögreglan þá sem einhverjar upplýsingar hafa um það að hafa samband.  

Laust upp úr hádegi á sunnudag var lögreglu tilkynnt um að bifreið hafi verið rispuð sem stóð á Faxastíg en talið er að skemmdarverkið hafi verið framið aðfaranótt sama dags.  Ekki er vitað hver þar var að verki og óskar lögreglan eftir því að þeir sem hafa einhverja vitneskju um geranda að hafa samband.

Tveir þjófnaðir voru tilkynntir lögreglu um helgina. Í fyrra tilvikinu var farið inn um glugga í Hamarsskóla þar sem íþróttahópur var í gistingu og rótað í töskum. Ekki var vitað hvort einhverju var stolið.  

Í seinna tilvikinu var um að ræða meintan þjófnað á áfengi frá Kaffi Maríu undir kvöld sl. sunnudag, en ekki er ljóst hver það var sem tók áfengið og er málið í rannsókn.

Eitt fíkniefnamál kom upp um helgin en komið var með ætlað tóbaksblandað hass á lögreglustöðina sem fannst í bifreið. Eigandi bifreiðarinnar, sem kom með efnið á lögreglustöðina, vissi ekki hvar það var sem átti efnið.

Tvö slys voru tilkynnt til lögreglunnar í vikunni sem leið. Í fyrra tilvikinu var um að ræða vinnuslys í Eyjaver en þarna hafði maður orðið undir lyftara með annan fótinn.  Hann var fluttur á sjúkrahúsið en reyndist óbrotinn.

Um miðjan dag sl. laugardag var lögreglu tilkynnt um slys á svokallaðir “Krossbraut” á nýjahrauni, en þarna hafði maður sem var á krosshjóli fallið af hjólinu og meiðst á baki.  Ökumaðurinn var fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugvél til skoðunar. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl hans eru.

Af umferðarmálum er það að frétt að þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur og eru þar með komnir 16 ökumenn á þessu ári sem staðnir hafa verið að ölvun við akstur á móti 11 á sama tíma í fyrra.  Hins vegar er um að ræða svipaðan fjölda og árið 2005 en þá höfðu 15 ökumenn verið staðnir að akstri undir áhrifum áfengis um þetta leiti árs.

Nýjustu fréttir

Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Stormur á Stórhöfða
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.