�?rír bílar skemmdir og áfengi stolið af veitingastað

Fjögur eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu um helgina, þar af voru þrír bílar skemmdir. Á laugardagsmorgun barst lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynning um að tvær bifreiðar hefðu verið skemmdar á bílastæði Hamarsskólans en hliðarspeglar höfðu verið skemmdir. Ekki er vitað um hverjir voru þarna að verki og hvetur lögregla þá sem einhverjar upplýsingar hafa um málið […]

ÍBV mætir Afturelding2 í 32ja liða úrslitum

Nú rétt í þessu var dregið í 32ja liða úrslitum bikarkeppni HSÍ. ÍBV dróst gegn Aftureldingu2 sem fær heimaleik þar sem liðið er lægra skrifað en úrvalsdeildarlið ÍBV. 1. deildarlið Selfoss fær úrvalsdeildarlið Akureyri í heimsókn og Selfoss2 sækir Víking2 heim. Leikirnir fara fram 7. og 8. október. (meira…)

Slys á motocrossbrautinni

Á laugardag var lögregla kölluð að motocrossbrautinni á Nýja hrauninu en þar hafði orðið slys. Einn mótorhjólakappinn hafði fallið af hjólinu og meiðst á baki en hann var fluttur til Reykjavíkur með sjúkraflugvél til skoðunar. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru. (meira…)

Fjórir fengu gistingu hjá lögreglu um helgina

Töluverður erill var hjá lögreglunni í síðastliðinni viku og um helgina fengu fjórir að gista fangageymslur. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar og átti árásin sér stað í heimahúsi. Ósætti urðu milli tveggja íbúa hússins sem endaði með átökum. Ekki var um alvarlega áverka að ræða. Þá var lögregla köllu að húsi […]

Helstu verkefni lögreglu frá 24. september til 1. október 2007.

Töluverður erill var hjá lögreglunni í sl. viku og um helgina og fengu fjórir að gista fangageymslur lögreglu um helgina. Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur. Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir skemmtana hald helgarinnar og átti árásin sér stað í heimahúsi. Ósætti urðu á milli tveggja íbúa í […]

Gunnar Heiðar í liði vikunnar

Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Árni Gautur Arason eru báðir í „liði umferðarinnar hjá dagblaðinu Aftenposten vegna frammistöðu sinnar með Vålerenga gegn Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudaginn. Gunnar Heiðar var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti eftir að hann kom til Óslóarliðsins sem lánsmaður frá Hannover í Þýskalandi og skoraði hann fyrra markið í […]

Fjárfestar sýna Sparisjóði Vestmannaeyja áhuga.

Á laugardaginn var auglýst í Morgunblaðinu eftir stofnfé til kaups í Sparisjóði Vestmannaeyja og kom fram í auglýsingunni að hagstæð kjör væru í boði fyrir stofnfjáraðila. www.eyjar.net höfðu samband við auglýsenda sem vildi ekki gefa upp nafn sitt en sagðist vera fjárfestir sem hefði trú á Sparisjóðnum í Vestmanneyjum og því væri verið að sækjast […]

Vestmannaeyjar í dag

Fór á sjó í gær með 12 bjóð. Veðrið var fallegt en svolítið þungur sjór, en slétti þegar leið á daginn. Afli var ágætur, eða tæp 2 tonn, þar af ca. 1200 langa og 500 ýsa. Það versta er að þá er sennilega löngukvótinn búinn þetta árið og þarf ég að leigja mér löngukvóta það […]

8.flokkur öflugir með 2 sigra og 2 naum töp

Peyjarnir í 8.flokki ÍBV í körfubolta stóðu sig frábærlega um helgina á þeirra fyrsta fjölliðamóti vetrarins. Mótið fór fram í Vestmannaeyjum og er greinilega mikil uppgangur hjá yngri flokkum ÍBV í körfubolta. Lið ÍBV sigraði Breiðablik 27-19 og Hamar 42- 32 en ÍBV tapaði naumlega fyrir Fjölni 35 – 38 og leikurinn við Grindavík endaði […]

Héldu sæti sínu í B-riðli

8. flokkur karla lék um helgina í B-riðli Íslandsmótsins en þetta var fyrsta fjölliðamót vetrarins og fór það fram hér í Eyjum. Eyjapeyjar stóðu sig mjög vel, unnu tvo leiki en töpuðu tveimur og voru í raun óheppnir að vinna ekki í það minnsta annan tapleikinn. En markmiðið að halda sæti sínu í næst efsta […]

Glæsilegt sumarlokahóf hjá krökkunum

Á föstudaginn síðastliðinn var haldið glæsilegt sumarlokahóf hjá yngri flokkum ÍBV en hófið fór fram í íþróttamiðstöðinni. Margt skemmtilegt var gert en hápunkturinn var að sjálfsögðu verðlaunaafhendingarnar og má sjá nöfn þeirra sem hlutu viðurkenningar hér að neðan. Þá vakti þrautabraut þjálfara mikla kátínu hjá krökkunum en þar kepptu þjálfara sín á milli. Og auðvitað […]

Stal 200 tóbakskartonum

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi 26 ára Rangæing til að greiða 150 þúsund króna sekt, eða sitja í fangelsi í tólf daga, fyrir innbrotsþjófnað. Maðurinn braust inn í verslunina Landvegamót fyrir tveimur árum og stal þaðan 200 kartonum af tóbaki, að andvirði 89 þúsund króna. (meira…)

Laug að lögreglu

Átján ára Eyrbekkingur var í síðustu viku dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að aka sviptur ökuréttindum og villa á sér heimildum. Honum var gert að greiða 200 þúsund króna sekt eða sæta ella fangelsi í fjórtán daga. (meira…)

Verðlaun á Sumarlokum ÍBV 2007

Á föstudaginn klukkan 15:00 var lokahóf yngri flokka ÍBV í knattspyrnu og voru þá framtíðarleikmenn ÍBV í karla- og kvennaflokki verðlaunaðir fyrir afrakstur sumarsins.ÍBV varð t.d. Íslandsmeistari í 3.flokki kvenna í sumar og á Shellmótinu fékk A-liðið silfurverðlaun fyrir 2.sætið. Það er greinilegt að framtíðin er björt og í hópi þessara iðkennda eru okkar framtíðar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.