Hvurs,hvernig.hvað.hver,hverjir??

Hamagangurinn í fjölmiðlum Íslands var svo ótrúlegur í gær að á tímabili hélt ég að Jesú Kristur væri stiginn niður af himnum.Það var ótrúlega gaman að fylgjast með þessu öllu. Sandkassaliðið stóð fyrir aftan leikskólastjórann og það var eins og að þeim hefði verið refsað með því að taka af þeim föturnar og skóflurnar.Nýi meirihlutinn stóð saman með svip eins og að fullt af nýju dóti hefði komið á leikskólann.

Annars var best þegar Bogi og Örvar þeirra Reykvíkinga létu í sér heyra í beinni útsendingu.Þá rann það upp fyrir mér að þetta var náttúrulega bara spaugstofan á ferð.0000 Annars er ótrúlegt að heyra hvernig þetta fólk sem er í forsvari fyrir heila borg meðtekur mótstreymi.Hver er með þér,hver sagði þetta, hann sagði hitt,ertu með mér,ekki benda á mig.Þá sá ég að þetta er ekkert betur gefið né hæfara til daglegs lífs en við lesendur góðir.Svo er líka eftirtektarvert hversu lítið er í rauninni að gerast á landinu.Aumingja fréttamennirnir sem eru svona dags daglega að skrifa um ,daglegt líf í Reykjavík,hundur beit mann,keyrði á staur,Jón giftist Gunnu,eða álíka innantómt rugl,þarf loksins að taka til hendinni og fylgjast með svona farsa.Á meðan rennur bara allt ljúft í gegn hér á Eyjunni fögru.Í það minnsta erum við ekki að sligast í umferðaröngþveiti,né biðraðamenningu.00

http://blog.central.is/bukollabaular

 

Nýjustu fréttir

Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.