Háskólinn á Bifröst opnar útibú í Vestmannaeyjum

Háskólinn á Bifröst opnar í dag útibú í Vestmannaeyjum. Segir skólinn, að tilgangur útibúsins sé að veita Vestmannaeyingum upplýsingar um námsframboð Háskólans á Bifröst í styttri námsleiðum, frumgreinadeild, grunnnámi í háskóla, meistaranámi og á sviði símenntunar og endurmenntunar, bæði í staðnámi og fjarnámi auk annarra upplýsinga um starfsemi Háskólans á Bifröst.

Háskólinn á Bifröst og menntastofnanir í Vestmannaeyjum munu vinna sameiginlega að aukinni kennslu og annarri starfsemi í Vestmannaeyjum en nú eru á þriðja tug Eyjamanna auk fjölskyldna sem stunda nám í Háskólanum á Bifröst, í staðnámi og fjarnámi.  Aðilar eru sammála um að auka fjölda námskeiða, styttri sem lengri, bæði í Vestmannaeyjum og í fjarnámi.

Nýjustu fréttir

Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.